Framundan í dymbilviku og um páska
Á skírdag, fimmtudaginn 5. apríl, verður messa með altarisgöngu kl. 14 í Snóksdalskirkju.
Sama dag verður guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 16 á Fellsenda.
Á aðfangadag páska, laugardaginn 7. apríl, kl. 21 verður páskavaka í Staðarfellskirkju. Kveikt verður á páskakertinu í upphafi stundarinnar í myrkvaðri kirkjunni og smátt og smátt fyllist kirkjan af ljósi. Í athöfninni undirbúum við okkur fyrir stærstu hátíð kristinna manna.
Á páskadag, sunnudaginn 8. apríl, verður hátíðarguðsþjónusta kl. 11 í Hjarðarholtskirkju. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og með því í þjónustuhúsinu eftir athöfn.
Sama dag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Stóra Vatnshornskirkju.
Á annan í páskum, mánudaginn 9. apríl, verður guðsþjónusta kl. 11 í Silfurtúni og hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Hvammskirkju.
Höldum sanna páska! Gleðilega hátíð!
Merki: Altarisganga, Fellsendi, hátíðarguðsþjónusta, Hjarðarholtskirkja, Hvammskirkja, messa, Páskar, páskavaka, Silfurtún, Snóksdalskirkja, Staðarfellskirkja, Stóra Vatnshornskirkja
Óskar Ingi Ingason, 1/4 2012 kl. 15.09