Kveðjumessa á annan í hvítasunnu
Kveðjumessa verður í Hjarðarholtskirkju á annan í hvítasunnu, 28. maí, kl. 14. Séra Óskar Ingi kveður söfnuðina eftir 17 ára þjónustu, en hann er frá 1. júní næstkomandi skipaður sóknarprestur Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalls. Boðið verður upp á kaffi eftir athöfn.
Óskar Ingi og fjölskylda þakka fyrir gott samfélag og stuðning í gegnum tíðina. Megi góður Guð vaka yfir ykkur og blessa.
Merki: annar í Hvítasunnu, Hjarðarholtskirkja, kveðjumessa, messa
Óskar Ingi Ingason, 22/5 2012 kl. 12.03