Dalaprestakall

 

Brúðkaup

Brúðkaup 2012:

Laugardagurinn 10. mars 2012 í Stóra Vatnshornskirkju:
Unnsteinn Árnason og Íris Björg Guðbjartsdóttir

Brúðkaup 2010:
Laugardagurinn 1. maí 2010 í Garðakirkju á Álftanesi:
Thelma Kristín Kvaran og Ingvar Birgir Jónsson.

Laugardagurinn 10. júlí 2010 í Lágafellskirkju:
Erla Kolbrún Lúðvíksdóttir og Hafþór Reynisson.

Laugardagurinn 31. júlí 2010 í Hvammskirkju:
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir og Jón Þór Kristjánsson.
Prestur: séra Elína Hrund Kristjánsdóttir.



Brúðkaupsathöfnin er byggð upp á þennan hátt:

BRÚÐARMARS.

SÁLMUR.

ÁVARP.

PRESTUR: (allir taki þátt í signingunni).

Í nafni Guðs + föður og sonar og heilags anda.

Ávarpið.

SÁLMUR.

Að sálminum loknum ganga brúðhjónin að gráðum.

RITNINGARORÐ OG HJÓNAVÍGSLA.

Fyrst lesnir textar, síðan brúðgumi spurður tveggja spurninga. Þar á eftir brúður einnig.

Síðan er skipst á hringum.

Þau heilsast síðan með hægri hönd er prestur biður þau um það. Prestur leggur hönd sína yfir samanteknar hendur þeirra og lýsir vígslu.

Þá krúpa brúðhjónin á gráðurnar, svaramenn setjast saman og er beðið bænar sem endar á “…..um aldir alda.” Allir svara: “amen”. Síðan biðja allir saman Faðir vor.

Síðan er lýst blessun og brúðhjón rísa á fætur, kyssast og setjast saman.

SÁLMUR.

(BÆN.)

(SÁLMUR.)

ÚTGÖNGUMARS.

Sjá ítarlegri skýringar.

Brúðkaupssálmar og lög.

Nýir brúðkaupssálmar.

 

Dalaprestakall, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Sími 4341639 · Kerfi RSS