Dalaprestakall

 

Allra heilagra messa

Á sunnudag, 1. nóvember, verður messa með altarisgöngu í Hjarðarholtskirkju kl. 14.  Í messunni verður minnst látinna ástvina og kveikt á kertum.  Allra heilagra messa og allra sálna messa.  Kaffi í þjónustuhúsinu eftir athöfn.  Allir velkomnir.

Sama dag verður sunnudagaskólinn í Hjarðarholtskirkju kl. 11, eins og alla sunnudaga fram að jólum.  Söngur, gleði og bros!!  Boðið verður uppá djús og dund eftir guðsþjónustu í þjónustuhúsinu.

Kóræfingar verða á mánudagskvöldum í Tónlistarskólanum kl. 20.  Allir velkomnir.

Óskar Ingi Ingason, 28/10 2009

Fermingarbarnamót á Laugum lokið

Fermingarbarnamót 2009

Frá sunnudags 25. okt. til þriðjudags 27. okt. var haldið fermingarbarnamót á Laugum í Sælingsdal.

Mótið tókst mjög vel og voru unglingarnir úr Stykkishólms-, Dala- og Reykhólaprestakalli hin ánægðustu.

Nú eru komnar myndir frá ferðinni á myndasíðu prófastsdæmisins.

Prestar í Dalabyggð (og víðar)

Prestar í Dalabyggð (og víðar)

Óskar Ingi Ingason, 28/10 2009

Framundan

Á næstunni:

Sunnudaginn 1. nóvember,  Allra heilagra messa:

  • kl. 11 verður  sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju.
  • kl. 14 verður messa í Hjarðarholtskirkju.

Sunnudaginn 8. nóvember, Kristniboðsdagurinn:

  • kl. 11 verður  sunnudagaskóli í Silfurtúni.
  • kl. 14 verður guðsþjónusta í Snóksdalskirkju.

Sunnudaginn 15. nóvember:

  • kl. 11 verður  sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju.
  • kl. 14 verður guðsþjónusta í Hvammsskirkju.

Óskar Ingi Ingason, 19/10 2009

Guðsþjónusta í Staðarfellskirkju

Á sunnudaginn,18. október, verður guðsþjónusta í Staðarfellskirkju kl. 14.  Allir velkomnir.

Óskar Ingi Ingason, 13/10 2009

Fjölskylduguðsþjónusta í Kvennabrekkukirkju

Á sunnudag, 18. október, kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í Kvennabrekkukirkju. Guðsþjónustan er í senn sunnudagaskóli og almenn guðsþjónusta. Alla sunnudaga fram að jólum verða sunnudagaskólar. Ekki gleyma að leyfa mömmu, pabba og systkinunum að koma með!!

Óskar Ingi Ingason, 13/10 2009

Sunnudagaskólinn í Hjarðarholtskirkju

Á sunnudaginn, 11. október, verður sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju kl. 11.

Bjössi bangsi mætir. Íris Björg verður með gítarinn.

Alla sunnudaga fram að jólum verða barnaguðsþjónustur. Ekki gleyma að leyfa mömmu, pabba, systkinunum og bangsa að koma með!

Óskar Ingi Ingason, 6/10 2009

Biðjum og styðjum 4. til 11. október

Ár er frá því að efnahagskreppa skall yfir íslenska þjóð. Um allt land brugðust söfnuðir við og sinntu þeirri skyldu sinni að aðstoða fólk. Mikið hefur mætt á Hjálparstarfi kirkjunnar. Umsóknum um aðstoð fjölgaði gríðarlega, fólk sem aldrei hefur áður þurft á aðstoð að halda hefur þurft að stíga þau örðugu spor. Sem dæmi má nefna að í september 2008 varði Hjálparstarfið 900.000 krónum í aðstoð, mat, lyf, skólagjöld, skólavörur, tómstundagjöld og fleira. Í september 2009 var þessi upphæð um átta milljónir króna.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 6/10 2009

Fermingarbarnamót vetrarins

Fermingarbarnamót prófastsdæmisins verður haldið á Laugum í Sælingsdal 25.-27. október 2009.
Takið frá daginn!

Meiri upplýsingar hér.

Óskar Ingi Ingason, 1/10 2009

Fjölskylduguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju

Á sunnudag, 4. október, kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju. Guðsþjónustan er í senn sunnudagsskóli og almenn guðsþjónusta. Alla sunnudaga fram að jólum verða barnaguðsþjónustur. Ekki gleyma að leyfa mömmu, pabba og systkinunum að koma með!! Boðið verður uppá djús og dund eftir guðsþjónustu í þjónustuhúsinu.

Sóknarprestur.

Óskar Ingi Ingason, 1/10 2009

Fermingarfræðsla 2009-2010

Fermingarfræðsla vetrarins hefst fimmtudaginn 24. september kl. 15:30 í Rauða kross húsinu. Tímar verða annan hvern fimmtudag.

Fundur með foreldrum verður í Þjónustuhúsi Hjarðarholtskirkju kl. 20:30 þriðjudaginn 29. september.   Fundurinn þann 22. frestast því um viku.

Hér fyrir neðan er tengill á fésbókarsíðu fermingarstarfsins.

Sjá nánar

Óskar Ingi Ingason, 20/9 2009

Viðtalstímar: þriðju- til fimmtudaga kl. 11-12 á skrifstofu sóknarprests, Miðbraut 11.
Netfang: oskar.ingi.ingason@kirkjan.is
Sími: 434-1639. Neyð: 844-5858.

Vesturlandsprófastsdæmi

Forsíðumyndin er af Krosshólaborg. Á borgirnar setti Auður djúpúðga krossa og bað bæna sinna, en hún er fyrsta landnámskonan og var kristin.


Hjálparstarf

Barnatrú.is

Vefur Dalabyggðar

Kirkjualmanak

Fimmtudagur

Kl. 11-12 viðtalstími.
kl. 15:30-17 fermingarfræðsla aðra hverja viku.

Dagskrá ...