Dalaprestakall

 

Aðventukvöld á Staðarfelli

Á föstudag, 9. desember, verður sameiginlegt aðventukvöld safnaðanna í Staðarfellskirkju kl. 21.  Fjölbreytt dagskrá þar sem söfnuðirnir eru mjög virkir.

Sama dag,  föstudag, kl. 11  verður kyrrðarstund á Fellsenda.

Á sunnudag, 11. desember, verður sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju kl. 11.  Leyfið mömmu og pabba að koma með og hjálpið þeim að komast í rétta aðventuskapið!

Á miðvikudag, 14. desember, verður kyrrðarstund á Silfurtúni kl. 16:30. Slíkar stundir verða á miðvikudögum á aðventu.  Allir ávallt velkomnir!

Óskar Ingi Ingason, 8/12 2011

Aðventukvöld safnaðanna

Á sunnudag, 4. desember, verður sameiginlegt aðventukvöld safnaðanna í Stóra Vatnshornskirkju kl. 20.  Fjölbreytt dagskrá þar sem söfnuðirnir eru mjög virkir.  Nemendur úr tónlistaskólanum leika lög.  Kirkjukór Dalaprestakalls styður við sönginn.  Einnig verður flutt ljóð og lesin jólasaga.

Á sunnudag, 4. desember, verður sunnudagaskólinn í Hjarðarholtskirkju kl. 11.  Söngur, gleði, bangsar og bros!!

Óskar Ingi Ingason, 29/11 2011

Framundan á aðventu

1. sunnudagur í aðventu, 27. nóvember:

kl. 11 Sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju.

kl. 14 Aðventustund á Fellsenda með kvenfélaginu Fjóla.

Miðvikudagur, 30. nóvember:

kl. 14 Aðventuguðsþjónusta á Silfurtúni.

Fimmtudagur, 1. desember

kl. 15:30 Fermingarfræðsla.

Föstudagur , 2. desember:

kl. 11 Aðventuguðsþjónusta á Fellsenda.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 25/11 2011

Sunnudagaskóli og Fjóla á Fellsenda

Sunnudagaskólinn verður á sunnudag, 27. nóvember, 1. sunnudag í aðventu, í Hjarðarholtskirkju kl. 11.  Á eftir verður djús og dund í þjónustuhúsi kirkjunnar.  Allir velkomnir.  Sunnudagaskólinn verður alla sunnudaga fram að jólum.

Kvenfélagið Fjóla verður með árlegu aðventustundina á Fellsenda kl. 14 sama dag.

Óskar Ingi Ingason, 24/11 2011

Sunnudagaskólinn

Sunnudagaskólinn verður á sunnudag, 20. nóvember, í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Á eftir verður djús og dund í þjónustuhúsi kirkjunnar. Allir velkomnir. Sunnudagaskólinn verður alla sunnudaga fram að jólum.

Óskar Ingi Ingason, 19/11 2011

40 ára afmæli Stóra Vatnshornskirkju

Á sunnudaginn, 20. nóvember, verður guðsþjónusta í Stóra Vatnshornskirkju kl. 14 í tilefni þess að 15. ágúst síðastliðinn voru 40 ár frá því að kirkjan var vígð. Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 13/11 2011

Afleysing sóknarprests

Séra Gunnar Eiríkur Hauksson, sóknarprestur í Stykkishólmi, leysir sóknarprest  af í vegna kirkjuþings og er hann í síma 865-9945.

Óskar Ingi Ingason, 13/11 2011

Sunnudagaskóli fellur niður

Sunnudagaskólinn í Hjarðarholtskirkju á sunnudag, 13. nóvember, fellur niður vegna kirkjuþings.

Hann verður á ný 20. nóvember.

Óskar Ingi Ingason, 11/11 2011

Aðalfundur og allra heilagra messa

Á sunnudag, 6. nóvember, verður messa með altarisgöngu í Hjarðarholtskirkju kl. 14.  Í messunni verður minnst látinna ástvina og kveikt á kertum.  Kaffi í þjónustuhúsinu eftir athöfn.  Allir velkomnir.

Sama dag verður sunnudagaskólinn í Hjarðarholtskirkju kl. 11, eins og alla sunnudaga fram að jólum. Boðið verður uppá djús og dund í þjónustuhúsinu.

Sama dag kl. 16 verður aðalsafnaðarfundur Hjarðarholtssóknar í þjónustuhúsi Hjarðarholtskirkju.  Dagskrá fundar eru venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og önnur mál.

Óskar Ingi Ingason, 31/10 2011

120 ára afmæli Staðarfellskirkju

Á sunnudaginn, 30. október, verður guðsþjónusta í Staðarfellskirkju kl. 14 í tilefni þess að 11. október síðastliðinn voru 120 ár frá því að kirkjan var vígð.  Boðið verður í kaffi eftir athöfn.  Fjölmennum til kirkju Guðs, fögnum og þökkum.

Sama dag verður sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju kl. 11.  Hvað verður í fjársjóðskistunni?  Djús og dund í þjónustuhúsinu á eftir.  Ekki gleyma að leyfa mömmu, pabba og systkinunum að koma með!!

Sunnudaginn 6. nóvember kl. 16 verður aðalsafnaðarfundur Hjarðarholtssóknar í þjónustuhúsi Hjarðarholtskirkju.  Dagskrá fundar eru venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og önnur mál.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 25/10 2011

Viðtalstímar: þriðju- til fimmtudaga kl. 11-12 á skrifstofu sóknarprests, Miðbraut 11.
Netfang: oskar.ingi.ingason@kirkjan.is
Sími: 434-1639. Neyð: 844-5858.

Vesturlandsprófastsdæmi

Forsíðumyndin er af Krosshólaborg. Á borgirnar setti Auður djúpúðga krossa og bað bæna sinna, en hún er fyrsta landnámskonan og var kristin.


Hjálparstarf

Barnatrú.is

Vefur Dalabyggðar

Kirkjualmanak

Miðvikudagur

Kl. 11-12 viðtalstími.
Kl. 14 helgistund eða heimsókn á Silfurtúni einn dag í mánuði.
Kl. 16:30 kyrrðarstundir á föstu og aðventu á Silfurtúni.

Dagskrá ...