Hin árlega helgiganga frá Hvammskirkju að Krosshólaborg hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Gangan er í samstarfi við Menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar og Starfshóps Þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum.
Óskar Ingi Ingason, 8/6 2011
Á hvítasunnudag, sunnudaginn 12. maí, verður hátíðarguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Allir velkomnir á hátíð Heilags anda. Kaffi og meðlæti í þjónustuhúsinu eftir athöfn.
Óskar Ingi Ingason, 6/6 2011
Á Uppstigningardag, fimmtudaginn, 2. júní, verður almenn guðsþjónusta í Silfurtúni kl. 14. Eldri borgarar eru sérstaklega hvattir til að taka þátt í athöfninni, en að sjálfsögðu eru allir meira en velkomnir. Boðið verður upp á kaffi á eftir athöfn og gefst þá tækifæri á að skoða handverksýninguna í Silfurtúni. Allir velkomnir.
Óskar Ingi Ingason, 25/5 2011
Nú er ný skrifstofa sóknarprests flutt innan Stjórnsýsluhússins. Hún er nú á annari hæð fyrir ofan bókasafnið, í skrifstofunni á milli Héraðsskjasafnsins/Félagsþjónustu Dalabyggðar og Stéttarfélags Vesturlands.
Viðtalstímar eru þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 11-12, auk eftir samkomulagi. Sími á skrifstofu er 434-1639.
Óskar Ingi Ingason, 12/5 2011
Á sunnudaginn, 8. maí, verður messa í Hjarðarholtskirkju kl. 14. Aníta Rún Harðardóttir verður fermd í athöfninni.
Óskar Ingi Ingason, 1/5 2011
Sóknarprestur, Óskar Ingi, kemur aftur til starfa 1. maí. Skrifstofusíminn er 434-1639 og viðtalstímar þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 11-12, auk eftir samkomulagi. Neyðarvakt er í síma 844-5858.
Við þökkum séra Elínu Hrund Kristjánsdóttur og séra Halldóri Reynissyni kærlega fyrir þeirra góðu þjónustu undanfarin misseri.
Óskar Ingi Ingason, 29/4 2011
Pálmasunnudagur:
Hvammskirkja kl. 11:00. Fermingarguðsþjónusta.
Fermd verða:
Elín Huld Melsted Jóhannesdóttir, Elísa Katrín Guðmundsdóttir og Guðmundur Guðbjörnsson
Prestur: Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir
Organisti: Halldór Þ. Þórðarson og kór Dalaprestakalls.
Skírdagur:
Kvennabrekkukirkja kl. 14:00. Ferming og skírn.
Fermdur verður Haraldur Ingi Finnbogason
Fellsendi kl. 16:00. Helgistund, lesið úr Passíusálmum
Snóksdalskirkja kl. 20:00. Helgistund, lesið úr Passíusálmum
Páskadagur:
Hjarðarholtskirkja kl. 11:00. Hátíðarguðsþjónusta
Silfurtún kl. 13:30. Helgistund
Staðarfellskirkja kl. 16:00. Guðsþjónusta
Prestur: Sr. Halldór Reynisson
Organisti: Halldór Þ. Þórðarson og kór Dalaprestakalls.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 13/4 2011
Hjarðarholtskirkja kl. 13:00
Staðarfellskirkja kl. 15:00
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 17/3 2011
Guðsþjónustur verða haldnar í Stóra Vatnshornskirkju og Kvennabrekkukirkju sunnudaginn 20. febrúar.
Stóra Vatnshornskirkja kl. 13:00
Kvennabrekkukirkja kl. 15:00
Prestur: Elína Hrund Kristjánsdóttir
Organisti: Halldór Þ. Þórðarson
Kór Dalaprestakalls
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 18/2 2011
Fjölskyldumessa verður í Hjarðarholtskirkju Sunnudaginn 30.janúar kl. 11.00
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 27/1 2011