Dalaprestakall

 

Barnastarfið hefst 2. október

Sunnudaginn 2. október kl. 11 hefst barnastarf vetrarins með fjölskylduguðsþjónustu í Hjarðarholtskirkju.

Sunnudagaskólinn verður svo á sunnudögum frá því í Hjarðarholtskirkju kl. 11 fram að jólum og svo djús og dund í þjónustuhúsinu á eftir.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 5/9 2011

Fermingarfræðslan að hefjast

Fermingarfræðslan hefst í Rauða krosshúsinu í Búðardal fimmtudaginn 8. september kl. 15:30 og verður annan hvern fimmtudag.

Fundur með forráðamönnum verður í þjónustuhúsi Hjarðarholtskirkju miðvikudaginn 7. september kl. 20:30.

Óskar Ingi Ingason, 1/9 2011

Guðsþjónusta og helgiganga

Á  sunnudag, 14. ágúst, verður hin árlega guðsþjónusta í Dagverðarneskirkju kl. 14. Allir eru velkomnir. Boðið verður upp á kaffi eftir athöfn.

Frá Dagverðarnesi 2008

Frá Dagverðarnesi 2008

Sama dag kl. 12:30 verður gengið í helgigöngu frá kirkjunni með keltneskan sólarkross í nágrenni hennar og endar helgigangan í guðþjónustunni í kirkjunni. Sóknarprestur og séra Gunnþór Þ. Ingason, prestur á sviði þjóðmenningar, leiða helgistundir við Altarishorn og Kirkjuhóla. Ásamt sókninni standa Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar og Starfshópur þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum að helgigöngunni. Ánægjulegt væri að sem flestir tækju þátt.

Helgiganga

Helgiganga

Óskar Ingi Ingason, 7/8 2011

Helgiganga og messa á Dagverðarnesi

Sunnudaginn 14. ágúst kl 14 verður messað í Dagverðarneskirkju.

Fyrr um daginn  kl. 12.30 verður gengið í helgigöngu frá kirkjunni með keltneskan sólarkross í nágrenni hennar.

Nánar auglýst síðar.

Óskar Ingi Ingason, 21/7 2011

Helgiganga að Krosshólaborg frestuð

Hin árlega helgiganga frá Hvammskirkju að Krosshólaborg hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Gangan er í samstarfi við Menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar og Starfshóps Þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum.

Óskar Ingi Ingason, 8/6 2011

Hátíðarguðsþjónusta á Hvítasunnudag

Á hvítasunnudag, sunnudaginn 12. maí, verður hátíðarguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Allir velkomnir á hátíð Heilags anda. Kaffi og meðlæti í þjónustuhúsinu eftir athöfn.

Óskar Ingi Ingason, 6/6 2011

Kirkjudagur eldri borgara

Á Uppstigningardag, fimmtudaginn, 2. júní, verður almenn guðsþjónusta í Silfurtúni kl. 14. Eldri borgarar eru sérstaklega hvattir til að taka þátt í athöfninni, en að sjálfsögðu eru allir meira en velkomnir. Boðið verður upp á kaffi á eftir athöfn og gefst þá tækifæri á að skoða handverksýninguna  í Silfurtúni.  Allir velkomnir.

Óskar Ingi Ingason, 25/5 2011

Skrifstofa sóknarprests flutt

Nú er ný skrifstofa sóknarprests flutt innan Stjórnsýsluhússins.  Hún er nú á annari hæð fyrir ofan bókasafnið, í skrifstofunni á milli Héraðsskjasafnsins/Félagsþjónustu Dalabyggðar og Stéttarfélags Vesturlands.

Viðtalstímar eru þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 11-12, auk eftir samkomulagi.  Sími á skrifstofu er 434-1639.

Óskar Ingi Ingason, 12/5 2011

Guðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju

Á sunnudaginn, 8. maí, verður messa í Hjarðarholtskirkju kl. 14. Aníta Rún Harðardóttir verður fermd í athöfninni.

Óskar Ingi Ingason, 1/5 2011

Óskar Ingi kemur aftur til starfa 1. maí

Sóknarprestur, Óskar Ingi, kemur aftur til starfa 1. maí. Skrifstofusíminn er 434-1639 og viðtalstímar þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 11-12, auk eftir samkomulagi. Neyðarvakt er í síma 844-5858.

Við þökkum séra Elínu Hrund Kristjánsdóttur og séra Halldóri Reynissyni kærlega fyrir þeirra góðu þjónustu undanfarin misseri.

Óskar Ingi Ingason, 29/4 2011

Viðtalstímar: þriðju- til fimmtudaga kl. 11-12 á skrifstofu sóknarprests, Miðbraut 11.
Netfang: oskar.ingi.ingason@kirkjan.is
Sími: 434-1639. Neyð: 844-5858.

Vesturlandsprófastsdæmi

Forsíðumyndin er af Krosshólaborg. Á borgirnar setti Auður djúpúðga krossa og bað bæna sinna, en hún er fyrsta landnámskonan og var kristin.


Hjálparstarf

Barnatrú.is

Vefur Dalabyggðar

Kirkjualmanak

Fimmtudagur

Kl. 11-12 viðtalstími.
kl. 15:30-17 fermingarfræðsla aðra hverja viku.

Dagskrá ...