Dalaprestakall

 

Afleysing í desember

Séra Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslusviðs Þjóðkirkjunnar, leysir af í Dalaprestakalli í desember. Sími hans er 528-4071 og farsími 856-1571. Netfang: halldor.reynisson@kirkjan.is.

Óskar Ingi Ingason, 30/11 2010

Kirkjuskóli í Hjarðarholti

Krikjuskóli verður í Hjarðarholtskirkju laugardaginn 27. nóvember.

Við ætlum að heyra um frænkurnar Elísabetu og Maríu og syngja og lita og borða kex og drekka djús og hafa það skemmtilegt.

Hlakka til að sjá ykkur :o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 24/11 2010

Kirkjuskólinn í Hjarðarholti fellur niður:O(

Kirkjuskólinn laugardaginn 20. nóvember fellur niður v. veikinda.

Mætum hress og kát á næsta laugardag 27. nóvember :o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 19/11 2010

Myndir frá fermingarbarnamóti 7. - 9. nóvember 2010

Myndir frá fermingarbarnamótinu sem haldið var dagana 7. - 9. nóvember eru komnar á heimasíðu prófastsdæmisins.  Séra Gunnar Eiríkur Hauksson, prófastur, tók myndirnar.

Krakkar frá Stykkishólms-, Dala- og Reykhólaprerstakalli voru á þessu móti.

Óskar Ingi Ingason, 19/11 2010

Kirkjuskólinn fellur niður Laugardaginn 6. nóvember!


Elína Hrund Kristjánsdóttir, 5/11 2010

Kirkjuskóli laugardaginn 23.október kl. 11:00

Kirkjuskóli verður í Hjarðarholtskirkju laugardaginn 23.október kl. 11:00.

Íris og Aldís sjá um stundina.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 20/10 2010

Helgihald í Dalaprestakalli 16.-17. október

Laugardaginn 16. október er Kirkjuskóli í Hjarðarholtskirkju kl. 11:00. Sérstaklega er vænst þátttöku fermingarbarna í kirkjuskólanum og eru þau hvött til að taka foreldra og yngri systkini með sér. Sunnudaginn 17. október verða messur í Snóksdalskirkju kl. 13:30 og í Staðarfellskirkju kl.16:00.

Kirkjuskólinn verða framvegis í Hjarðarholtskirkju á laugardögum kl. 11.00 amk.út nóvember.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 14/10 2010

Fjölskyldumessa í Hjarðarholtskirkju

Sunnudaginn 3. október kl.11.00 verður fjölskyldumessa í Hjarðarholtskirkju.

Upphaf sunnudagaskóla og fermingarstarfa í Dalaprestakalli.

Íris og Aldís starfa í sunnudagaskólanum í vetur og í október og nóvember mun sr. Elína Hurnd Kristjánsdóttir sóknarprestur í Reykhólaprestakalli vera þeim innan handar.

Fundur með foreldrum/forráðamönnum og væntanlegum fermingarbörnum verður eftir messuna svo þau eru öll hvött til að mæta.

Hlakka til að sjá ykkur :o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 24/9 2010

Sr. Elína Hrund leysir af í Dalaprestakalli

Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur Reykhólaprestakalls, leysir af í Dalaprestakalli þar til 1. desember.  Sími hennar er 434-7716 og farsími 860-9987.

Óskar Ingi Ingason, 20/9 2010

Helgiganga og messa á Dagverðarnesi

Sunnudaginn 15. ágúst kl 14 verður messað í Dagverðarneskirkju.  Sr. Elína H. Kristjánsdóttir þjónar fyrir altari og sr. Gunnþór Þ. Ingason prestur á sviði þjóðmenningar prédikar. Halldór Þórðarson leikur á harmonikku, Sigrún Halldórsdóttir á klarinettu og Ríkarður Jóhannsson á saxofón.

Fyrr um daginn  kl. 12.30 verður gengið í helgigöngu frá kirkjunni með keltneskan sólarkross í nágrenni hennar. Prestarnir leiða helgistundir við Altarishorn og Kirkjuhóla og Kristín Finndís Jónsdóttir sem á rætur á nesinu og hefur nú umráð yfir bænum á kirkjustaðnum lýsir umhverfi og kennileitum. Eftir messuna býður hún kirkjugestum í kirkjukaffi.

Ásamt forustuliði Dalaprestakalls standa Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar og Starfshópur þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum að þessu helgihaldi komandi sunnudag á Dagverðarnesi. Ánægjulegt væri að sem flestir tækju þátt í því.

Óskar Ingi Ingason, 9/8 2010

Viðtalstímar: þriðju- til fimmtudaga kl. 11-12 á skrifstofu sóknarprests, Miðbraut 11.
Netfang: oskar.ingi.ingason@kirkjan.is
Sími: 434-1639. Neyð: 844-5858.

Vesturlandsprófastsdæmi

Forsíðumyndin er af Krosshólaborg. Á borgirnar setti Auður djúpúðga krossa og bað bæna sinna, en hún er fyrsta landnámskonan og var kristin.


Hjálparstarf

Barnatrú.is

Vefur Dalabyggðar

Kirkjualmanak

Fimmtudagur

Kl. 11-12 viðtalstími.
kl. 15:30-17 fermingarfræðsla aðra hverja viku.

Dagskrá ...