Dalaprestakall

 

Lestur Passíusálma í Hjarðarholtskirkju

Á föstudaginn langa voru Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni í sjöunda sinn í Hjarðarholtskirkju.  Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson sáu um lesturinn. Lesturinn hófst kl. 13:30 og tók rúmar 4 klst. Boðið var upp á kaffi og með því  í þjónustuhúsinu. Lesturinn var góður og þess má geta að Björn las sálma í fimmta sinn, en hann hefur þrisvar lesið sálmanna einn, þar af í fyrstu tvö árin.

Björn Stefán Guðmundsson les passíusálmana í Hjarðarholti 2010

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 2/4 2010

Framundan í dymbilviku og um páska:

  • Á skírdag, fimmtudaginn 1. apríl, verður messa með altarisgöngu kl. 14 í Hvammskirkju.
  • Sama dag verður lesguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 16 á Fellsenda.
  • Á föstudaginn langa, 2. apríl, munu Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson lesa Passíusálma Hallgríms í Hjarðarholtskirkju.  Lesturinn hefst kl. 1330 og tekur um 4,5 klst.  Einnig verður leikin tónlist.  Þetta er í sjöunda sinn hér sem sálmarnir eru lesnir í heild sinni á þennan hátt.  Kaffi og með því verður í þjónustuhúsinu.  Allir eru eins og ávallt hjartanlega velkomnir.  Það er í lagi að stoppa stutt, ef þannig stendur á og jafnvel koma aftur.
  • Á aðfangadag páska, laugardaginn 3. apríl, kl. 21 verður páskavaka í Staðarfellskirkju.  Kveikt verður á páskakertinu í upphafi stundarinnar í myrkraði kirkjunni og smátt og smátt fyllist kirkjan af ljósi.  Í athöfninni undirbúum við okkur fyrir stærstu hátíð kristinna manna.

  • Á páskadag, sunnudaginn 4. apríl, verður hátíðarguðsþjónusta kl. 11 í Hjarðarholtskirkju.  Boðið verður upp á heitt súkkulaði og með því í þjónustuhúsinu eftir athöfn.
  • Sama dag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Snóksdalskirkju.
  • Á annan í páskum, mánudaginn 5. apríl, verður guðsþjónusta kl. 11 í Silfurtúni.
  • Sama dag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Kvennabrekkukirkju.

Höldum sanna páska!  Gleðilega hátíð!

Sóknarprestur.

Óskar Ingi Ingason, 28/3 2010

Kirkjustarf framundan í apríl

  • Skírdagur, fimmtudaginn 1. apríl, kl 14 verður messa í Hvammskirkju.
  • Skírdagur, fimmtudaginn 1. apríl, kl 16 verður messa á hjúkrunarheimilinu Fellsenda.
  • Föstudagurinn langi, 2. apríl, kl 13:30 verður lestur Passíusálmanna í Hjarðarholtskirkju.
  • Aðfangadag páska , laugardaginn 3. apríl, kl 21 verður páskavaka í Staðarfellskirkju.
  • Páskadaginn 4. apríl kl. 11 verður hátíðarmessa í Hjarðarholtskirkju.
  • Páskadaginn 4. apríl kl. 14 verður hátíðarmessa í Snóksdalskirkju.
  • Annan í páskum, mánudaginn 5. apríl, kl. 14 verður hátíðarmessa í Kvennabrekkukirkju.
  • Sunnudaginn 11. apríl kl. 11 verður messa í upphafi héraðsfundar í  Ingjaldshólskirkju.
  • Sunnudaginn 18. apríl kl. 14 verður fermingarmessa í Hjarðarholtskirkju.
  • Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl kl. 14 verður gospelguðsþjónusta í Snóksdalskirkju.
  • Sunnudaginn 25. apríl verður fermingarmessa í Hjarðarholtskirkju.

Óskar Ingi Ingason, 26/3 2010

Kyrrðarstund í Silfurtúni

Á fimmtudag, 25. mars, verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta á Silfurtúni kl. 16:30. Takið eftir breyttum tíma.  Síðasta kyrrðarstundin á föstunni. Allir velkomnir!

Óskar Ingi Ingason, 24/3 2010

Lestur Passíusálma

Passíusálmarnir hafa verið lesnir í heild sinni í Hjarðarholtskirkju á föstudaginn langa flest ár.  Þeir sem hafa áhuga á að lesa passíusálma á föstudaginn langa eru beðnir um að hafa samband við sóknarprest.

Óskar Ingi Ingason, 16/3 2010

Æskulýðsguðsþjónusta

Á sunnudaginn, 21. mars, verður æskulýðsguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju kl. 14.  Fermingarbörn sjá um bænir, lestur og kynningu á messunni.  Nemendur tónlistarskólans sjá um tónlistaratriði.  Kaffi í þjónustuhúsinu á eftir athöfn.  Ekki missa af þessari dýrmætu stund með börnunum okkar og unglingum í kirkjunni!

Óskar Ingi Ingason, 16/3 2010

Kyrrðarstundir á Silfurtúni

Á fimmtudag, 18. mars, verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta á Silfurtúni kl. 17:15. Slíkar stundir verða alla fimmtudaga á föstunni. Allir velkomnir!

Óskar Ingi Ingason, 16/3 2010

Fjölskylduguðsþjónusta í Hjarðarholti

Sunnudaginn 7. mars kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju.  Guðsþjónustan er í senn sunnudagsskóli og almenn guðsþjónusta. Ekki gleyma að leyfa mömmu, pabba, ömmum, öfum og systkinunum að koma með!!  Boðið verður uppá djús og kex eftir guðsþjónustu í þjónustuhúsinu.

Óskar Ingi Ingason, 4/3 2010

Kirkjustarf framundan

  • Fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 17:15 verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta í  dvalarheimilinu Silfurtúni.
  • Fimmtudaginn 4. mars, kl. 17:15 verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta í  dvalarheimilinu Silfurtúni.
  • Sunnudaginn 7. mars, kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í  Hjarðarholtskirkju.

Kaffi og djús í þjónustuhúsinu eftir athöfn.

  • Fimmtudaginn 11. mars, kl. 17:15 verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta í  dvalarheimilinu Silfurtúni.
  • Sunnudaginn 14. mars, kl. 14 verður guðsþjónusta í  Staðarfellskirkju.
  • Fimmtudaginn 18. mars, kl. 17:15 verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta í  dvalarheimilinu Silfurtúni.
  • Sunnudaginn 21. mars, kl. 14 verður æskulýðsguðsþjónusta í  Hjarðarholtskirkju.

Óskar Ingi Ingason, 25/2 2010

Kyrrðarstundir á Silfurtúni

Á fimmtudag, 18. febrúar, verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta á Silfurtúni kl. 17:15. Slíkar stundir verða alla fimmtudaga á föstunni. Allir velkomnir!

Óskar Ingi Ingason, 12/2 2010

Viðtalstímar: þriðju- til fimmtudaga kl. 11-12 á skrifstofu sóknarprests, Miðbraut 11.
Netfang: oskar.ingi.ingason@kirkjan.is
Sími: 434-1639. Neyð: 844-5858.

Vesturlandsprófastsdæmi

Forsíðumyndin er af Krosshólaborg. Á borgirnar setti Auður djúpúðga krossa og bað bæna sinna, en hún er fyrsta landnámskonan og var kristin.


Hjálparstarf

Barnatrú.is

Vefur Dalabyggðar

Kirkjualmanak

Miðvikudagur

Kl. 11-12 viðtalstími.
Kl. 14 helgistund eða heimsókn á Silfurtúni einn dag í mánuði.
Kl. 16:30 kyrrðarstundir á föstu og aðventu á Silfurtúni.

Dagskrá ...