Myndir úr skátaskrúðgöngu í kirkju
Sumar- og skátaguðþjónusta var í Snóksdalskirkju í morgun, sumardaginn fyrsta.
Óskar Ingi Ingason, 22/4 2010
Sumar- og skátaguðþjónusta var í Snóksdalskirkju í morgun, sumardaginn fyrsta.
Óskar Ingi Ingason, 22/4 2010
Kirkjukór Dalaprestakalls fór í síðustu viku í Hraunsnef í Borgarfirði til að gleðjast saman.
Guðrún Halldórsdóttir, fyrrum formaður kórsins, tók myndir sem birtar eru á myndasíðu prófastsdæmisins.
Óskar Ingi Ingason, 20/4 2010
Á fimmtudaginn, 22. apríl, Sumardaginn fyrsta, verður Sumar- og skátaguðsþjónusta í Snóksdalskirkju kl. 11. Komum saman og þökkum fyrir veturinn sem nú er að líða og föngum sumrinu! Skátarnir verða með skipulagða leiki frá kl. 10 og fara svo í skrúðgöngu að kirkjunni. Allir velkomnir.
Á sunnudaginn, 25. apríl, verður messa í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Fermt verður í athöfninni. Nöfn fermingarbarna eru hér.
Óskar Ingi Ingason, 20/4 2010
Messa verður í Hjarðarholtskirkju á sunnudag, 18. apríl kl. 14. Fermt verður í messunni. Allir velkomnir.
Framundan:
Óskar Ingi Ingason, 17/4 2010
Á vefnum eru birt nöfn og fermingardagur þeirra sem fermast í vor.
Hér eru nöfnin
Óskar Ingi Ingason, 9/4 2010
Nú eru gleðidagar í kirkjunni!
Löng hefð er fyrir gleði og léttleika á páskadag.
Hér eru nokkrar auglýsingar í léttum stíl: Lesa áfram …
Óskar Ingi Ingason, 4/4 2010
Á föstudaginn langa voru Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni í sjöunda sinn í Hjarðarholtskirkju. Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson sáu um lesturinn. Lesturinn hófst kl. 13:30 og tók rúmar 4 klst. Boðið var upp á kaffi og með því í þjónustuhúsinu. Lesturinn var góður og þess má geta að Björn las sálma í fimmta sinn, en hann hefur þrisvar lesið sálmanna einn, þar af í fyrstu tvö árin.
Óskar Ingi Ingason, 2/4 2010
Höldum sanna páska! Gleðilega hátíð!
Sóknarprestur.
Óskar Ingi Ingason, 28/3 2010
Óskar Ingi Ingason, 26/3 2010
Á fimmtudag, 25. mars, verður kyrrðarstund/föstuguðsþjónusta á Silfurtúni kl. 16:30. Takið eftir breyttum tíma. Síðasta kyrrðarstundin á föstunni. Allir velkomnir!
Óskar Ingi Ingason, 24/3 2010
Viðtalstímar: þriðju- til fimmtudaga kl. 11-12 á skrifstofu sóknarprests, Miðbraut 11.
Netfang: oskar.ingi.ingason@kirkjan.is
Sími: 434-1639. Neyð: 844-5858.
Vesturlandsprófastsdæmi
Forsíðumyndin er af Krosshólaborg. Á borgirnar setti Auður djúpúðga krossa og bað bæna sinna, en hún er fyrsta landnámskonan og var kristin.




Kl. 11-12 viðtalstími.
kl. 15:30-17 fermingarfræðsla aðra hverja viku.
Dalaprestakall, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Sími 4341639 · Kerfi ![]()