Prestakallið
Í prestakallinu eru 7 sóknir:
- Snóksdalssókn
- Kvennabrekkusókn
- Stóra Vatnshornssókn
- Hjarðarholtssókn
- Hvammssókn
- Staðarfellssókn
- Dagverðarnessókn.
1. apríl 2005 sameinuðust Hjarðarholts- og Hvammsprestakall í eitt, en Staðarhólssókn fluttist í Reykhólaprestakall.
Á kirkjuþingi 2007 var samþykkt tillögur biskupafundar um annars vegar að Skarðssókn flytjist yfir í Reykhólaprestakall og hins vegar að nafn prestakallsins verði Dalaprestakall, bæði frá 1. desember 2007.
Hér má finna upplýsingar um þá presta sem hafa þjónað í prestakallinu.