Safnaðarstarf
Guðsþjónustur eru í kirkjum safnaðanna á sunnudögum og hátíðum.
Hjartað í starfi hvers safnaðar er að finna í guðsþjónustunni. Hún er kjarni og uppskera hins daglega starfs.
Í öllum átta sóknum prestakallsins eru guðsþjónustur. Í Dagverðarnesi er ein guðsþjónusta á ári. Í Hjarðarholti er guðsþjónusta að jafnaði 1.-2. í mánuði, en 3.-6. sinnum á ári í hinum söfnuðunum.
Kyrrðarstundir eru á Silfurtúni vikulega á föstum kl. 17:15, en annars mánaðarlega kl. 14, bæði á miðvikudögum og mánaðarlegar tvær athafnir á Fellsenda kl. 11 á föstudögum.
Auk þess eru mánaðarlegar heimsóknir á Fellsenda og Silfurtúni.
Auk barnaguðsþjónusta, sem eru vikulegar á veturna fyrir jól í Hjarðarholtskirkju kl. 11, er farið í hverjum mánuði í heimsókn á leikskóladeild Auðarskóla.
Kirkjukór Dalaprestakalls æfir vanalega einu sinni í viku á vetri, á mánudögum í tónlistarskólanum, og fyrir hverja athöfn á sumrin.
Fullorðinsfræðsla: Boðið verður upp á eitt eða tvö námskeið á ári. Vorið 2010 verður boðið upp á námskeiðið Jesú bænin – bæn hjartans. Næsta námskeið verður svo væntanlega Gott betur, sem er samskiptanámskeið. Einnig verður boðið upp á Emmaus námskeið.
Organisti er Halldór Þ. Þórðarson.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um leyfð mannanafnanöfn á Íslandi.
Hér er hægt að nálgast skýringar á messunni.
Hér er hægt að finna hugmyndir og texta brúðkaupssálma og laga og nýir sálmar hér .
Upplýsingar um brúðkaupsathöfnina .