Dalaprestakall

 

Fréttir merktar með ‘Helgiganga’

Guðsþjónusta og helgiganga

Á  sunnudag, 14. ágúst, verður hin árlega guðsþjónusta í Dagverðarneskirkju kl. 14. Allir eru velkomnir. Boðið verður upp á kaffi eftir athöfn.

Frá Dagverðarnesi 2008

Frá Dagverðarnesi 2008

Sama dag kl. 12:30 verður gengið í helgigöngu frá kirkjunni með keltneskan sólarkross í nágrenni hennar og endar helgigangan í guðþjónustunni í kirkjunni. Sóknarprestur og séra Gunnþór Þ. Ingason, prestur á sviði þjóðmenningar, leiða helgistundir við Altarishorn og Kirkjuhóla. Ásamt sókninni standa Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar og Starfshópur þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum að helgigöngunni. Ánægjulegt væri að sem flestir tækju þátt.

Helgiganga

Helgiganga

Óskar Ingi Ingason · 7. ágúst 2011

Helgiganga og messa á Dagverðarnesi

Sunnudaginn 14. ágúst kl 14 verður messað í Dagverðarneskirkju.

Fyrr um daginn  kl. 12.30 verður gengið í helgigöngu frá kirkjunni með keltneskan sólarkross í nágrenni hennar.

Nánar auglýst síðar.

Óskar Ingi Ingason · 21. júlí 2011

Helgiganga að Krosshólaborg frestuð

Hin árlega helgiganga frá Hvammskirkju að Krosshólaborg hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Gangan er í samstarfi við Menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar og Starfshóps Þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum.

Óskar Ingi Ingason · 8. júní 2011

Helgiganga og messa á Dagverðarnesi

Sunnudaginn 15. ágúst kl 14 verður messað í Dagverðarneskirkju.  Sr. Elína H. Kristjánsdóttir þjónar fyrir altari og sr. Gunnþór Þ. Ingason prestur á sviði þjóðmenningar prédikar. Halldór Þórðarson leikur á harmonikku, Sigrún Halldórsdóttir á klarinettu og Ríkarður Jóhannsson á saxofón.

Fyrr um daginn  kl. 12.30 verður gengið í helgigöngu frá kirkjunni með keltneskan sólarkross í nágrenni hennar. Prestarnir leiða helgistundir við Altarishorn og Kirkjuhóla og Kristín Finndís Jónsdóttir sem á rætur á nesinu og hefur nú umráð yfir bænum á kirkjustaðnum lýsir umhverfi og kennileitum. Eftir messuna býður hún kirkjugestum í kirkjukaffi.

Ásamt forustuliði Dalaprestakalls standa Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar og Starfshópur þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum að þessu helgihaldi komandi sunnudag á Dagverðarnesi. Ánægjulegt væri að sem flestir tækju þátt í því.

Óskar Ingi Ingason · 9. ágúst 2010

Helgigangan á Krosshólaborg velheppnuð

Eftir indæla helgigöngu er rétt að segja frá og birta myndir frá göngunni og helgistundunum.

Göngumenn komu á bifreiðum sínum að Krosshólaborg og fóru þaðan klukkan 14 að Auðartóftum í skólabíl.

Í Auðartóft

Halla í Auðartóft.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason · 19. júní 2010

Helgiganga að Krosshólaborg

Helgiganga í minningu Auðar djúpúðgu verður farin laugardaginn 19. júní í Dölum, þar sem hún nam land fyrir rúmum 1100 árum. Auður djúpúðga Ketilsdóttir var eina konan í hópi landnámsfólks sem fór fyrir eigin leiðangri til Íslands og ein fárra þeirra sem Landnámabók segir að hafi verið kristinnar trúar. Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason · 11. júní 2010

Messur á sunnudag og helgiganga 19. júní

Á sunnudaginn, 13. júní, verða messur í Hvammskirkju kl. 11 og í Snóksdalskirkju kl. 14.  Fermt verður í athöfnunum.  Allir velkomnir.

Á kvenréttindadaginn, laugardaginn, 19. júní, verður helgiganga frá Auðartóftum um Hvamm að Krosshólaborgum kl. 14.  Helgistundir, írsk og skosk tónlist, auk þess sem Vilborg Davíðsdóttir les úr bók sinni um Auði djúpúðgu.  Nánar auglýst síðar.

Óskar Ingi Ingason · 8. júní 2010

Helgiganga að Krosshólaborgum

Laugardaginn 19. apríl verður farið í helgigöngu/pílagrímsgöngu frá Auðartóftum að Hvammi og síðan á Krosshólaborgir.

Takið daginn frá.

Nánar auglýst síðar.

Óskar Ingi Ingason · 31. maí 2010

     

    Dalaprestakall, Sunnubraut 25, 370 Búðardal. Sími 4341139 · Kerfi RSS