Dalaprestakall

 

Fréttir merktar með ‘Hvammskirkja’

Klippt tré við Hvammskirkju.

Hér eru myndir frá Hvammi af kirkjunni og umhverfi hennar eftir að klippt voru tré og önnur fjarlægð.

Óskar Ingi Ingason · 10. maí 2012

Framundan í dymbilviku og um páska

Á skírdag, fimmtudaginn 5. apríl, verður messa með altarisgöngu kl. 14 í Snóksdalskirkju.
Sama dag verður guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 16 á Fellsenda.

Á aðfangadag páska, laugardaginn 7. apríl, kl. 21 verður páskavaka í Staðarfellskirkju. Kveikt verður á páskakertinu í upphafi stundarinnar í myrkvaðri kirkjunni og smátt og smátt fyllist kirkjan af ljósi. Í athöfninni undirbúum við okkur fyrir stærstu hátíð kristinna manna.

Á páskadag, sunnudaginn 8. apríl, verður hátíðarguðsþjónusta kl. 11 í Hjarðarholtskirkju. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og með því í þjónustuhúsinu eftir athöfn.
Sama dag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Stóra Vatnshornskirkju.

Á annan í páskum, mánudaginn 9. apríl, verður guðsþjónusta kl. 11 í Silfurtúni og hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Hvammskirkju.

Höldum sanna páska! Gleðilega hátíð!

Óskar Ingi Ingason · 1. apríl 2012

Guðsþjónustuhald á jólum og áramótum:

Jólaguðsþjónusta á Fellsenda.
Á aðfangadag, 24. desember, verður helgistund á hjúkrunarheimilinu Fellsenda kl. 14.

Prestur: Óskar Ingi Ingason.  Allir velkomnir!

Aftansöngur í Hjarðarholtskirkju.
Aftansöngur verður í Hjarðarholtskirkju í Dölum á aðfangadag jóla kl. 18.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason.   Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.  Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.

Hátíðarguðsþjónusta í Staðarfellskirkju.

Hátíðarguðsþjónusta verður í Staðarfellskirkju á jóldag, 25. desember, kl. 17.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason. Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.

Kertaguðsþjónusta Í Kvennabrekkukirkju.

Á jóladagskvöld, 25. desember, verður kertaguðþjónusta í Kvennabrekkukirkju kl. 20:30.

Prestur: Óskar Ingi Ingason.  Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.

Aðeins verður notast við kertaljós í guðsþjónustunni.

Jólafjölskylduguðsþjónusta í Hvammskirkju.

Jólafjölskylduguðsþjónusta verður í Hvammskirkju á annan í jólum kl. 14.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason.  Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.

Fjölskylduguðsþjónusta er að forminu til hefðbundin guðsþjónusta, en með léttara yfirbragði sem hentar ekki síst börnunum.

Helgistund á Silfurtúni.

Á þriðja í jólum, 27. desember, verður helgistund á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Silfurtúni kl. 14.

Prestur: Óskar Ingi Ingason.  Allir velkomnir!

Hátíðarguðsþjónusta í Snóksdalskirkju.

Hátíðarguðþjónusta verður í Snóksdalskirkju á gamlársdag kl. 14.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason.  Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.  Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.

Óskar Ingi Ingason · 14. desember 2011

Jólaguðsþjónustur 2011

Aðfangadagur:

kl. 14 helgistund á Fellsenda.

kl. 18 aftansöngur í Hjarðarholtskirkju.

Jóladagur:

kl. 17 hátíðarguðsþjónusta í Staðarfellskirkju.

kl. 20:30 kertaguðsþjónusta í Kvennabrekkukirkju.

Annar í jólum:

kl. 14 fjölskylduguðsþjónusta í Hvammskirkju.

Þriðji í jólum:

kl. 14 helgistund á Silfurtúni.

Gamlársdagur:

kl. 14 hátíðarguðsþjónusta í Snóksdalskirkju.

Í kertaguðsþjónustu er reynt að notast eingöngu við kertaljós.

Fjölskylduguðsþjónusta er að forminu til hefðbundin guðsþjónusta, en með léttara yfirbragði sem hentar ekki síst börnunum.

Óskar Ingi Ingason · 9. desember 2011

Helgiganga að Krosshólaborg frestuð

Hin árlega helgiganga frá Hvammskirkju að Krosshólaborg hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Gangan er í samstarfi við Menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar og Starfshóps Þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum.

Óskar Ingi Ingason · 8. júní 2011

Gamlársdagur

Á gamlársdag, 31. desember, verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Hvammskirkju.

Guð gefi ykkur farsælt komandi nýtt ár.  Kærar þakkir fyrir gott samfélag á árinu sem er að líða!

Sóknarnefndir og sóknarprestur.

Óskar Ingi Ingason · 29. desember 2010

Guðsþjónustur á jólum og um áramót

Aðfangadagur:

  • kl. 14 helgistund á Fellsenda.
  • kl. 18 aftansöngur í Hjarðarholtskirkju.

Jóladagur:

  • kl. 15 helgistund í Silfurtúni.
  • kl. 17 hátíðarguðsþjónusta í Staðarfellskirkju.
  • kl. 20:30 kertaguðsþjónusta í Kvennabrekkukirkju.

Annar í jólum:

  • kl. 14 fjölskylduguðsþjónusta í Stóra Vatnshornskirkju.

Gamlársdagur:

  • kl. 14 hátíðarguðsþjónusta í Hvammskirkju.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason · 21. desember 2010

Helgigangan á Krosshólaborg velheppnuð

Eftir indæla helgigöngu er rétt að segja frá og birta myndir frá göngunni og helgistundunum.

Göngumenn komu á bifreiðum sínum að Krosshólaborg og fóru þaðan klukkan 14 að Auðartóftum í skólabíl.

Í Auðartóft

Halla í Auðartóft.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason · 19. júní 2010

Helgiganga að Krosshólaborg

Helgiganga í minningu Auðar djúpúðgu verður farin laugardaginn 19. júní í Dölum, þar sem hún nam land fyrir rúmum 1100 árum. Auður djúpúðga Ketilsdóttir var eina konan í hópi landnámsfólks sem fór fyrir eigin leiðangri til Íslands og ein fárra þeirra sem Landnámabók segir að hafi verið kristinnar trúar. Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason · 11. júní 2010

Messur á sunnudag og helgiganga 19. júní

Á sunnudaginn, 13. júní, verða messur í Hvammskirkju kl. 11 og í Snóksdalskirkju kl. 14.  Fermt verður í athöfnunum.  Allir velkomnir.

Á kvenréttindadaginn, laugardaginn, 19. júní, verður helgiganga frá Auðartóftum um Hvamm að Krosshólaborgum kl. 14.  Helgistundir, írsk og skosk tónlist, auk þess sem Vilborg Davíðsdóttir les úr bók sinni um Auði djúpúðgu.  Nánar auglýst síðar.

Óskar Ingi Ingason · 8. júní 2010

     

    Dalaprestakall, Sunnubraut 25, 370 Búðardal. Sími 4341139 · Kerfi RSS