Djáknafélag Íslands

 

Djáknafélagið 15 ára

Djáknafélag Íslands var  stofnað 5. apríl  1995 og er því 15 ára um þessar mundir. Félagið hélt upp á tímamótin með afmælishátíð 16. apríl í Áskirkju. Djáknastéttin er ung að árum í þeirri mynd sem hún er nú og hafa félagar oft talað um sjálfsmynd sína og velt henni fyrir sér. Til að halda þeirri umræðu áfram kom sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavík með erindi sem hún nefndi „sjálfsmyndin“.Veglegur kvöldverður var borinn fram og inn á milli rétta voru sagðar góðar, spaugilegar sögur úr líf og starfi djákna. Hátíðinni lauk með helgistund. Örn Arnarson var með tónlistaratriði og  Ásdísi Pétursdóttur Blöndal  hafði hugvekju. Ásdís er djákni við Áskirkju. Formaður félagsins er Nanna Guðrún Zoëga. Hún bauð gesti velkomna en afmælisnefnd skipi‘u þau Jón Jóhannsson og Sigríður Valdimarsdóttir.

Ragnheiður Sverrisdóttir, 19/4 2010 kl. 14.18

     

    · Kerfi RSS