Djáknafélag Íslands

 

Nýir djáknar í stjórn DÍ

Á aðalfundi Djáknafélagsins 26. apríl voru þær Nína Björg Vilhelmsdóttir og Kristín Axelsdóttir kosnar í stjórn félagsins. Nína er djákni í Breiðholtskirkju og Kristín er hjúkrunarforstjóri og djákni á heilsugæslustöðinni í Lágmúla.  Í stjórn voru fyrir þær Nanna Guðrún Zoëga, Fjóla Haraldsdóttir og Gréta Konráðsdóttir. Tvær gengu úr stjórn og gáfu ekki kost á sér aftur. Það eru þær Valgerður Hjartardóttir og Aase Gunn Dahl. Var þeim þökkuð vel unnin störf og Nína og Kristín boðnar velkomnar.

Ragnheiður Sverrisdóttir, 30/4 2010 kl. 17.06

     

    · Kerfi RSS