Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun
Árið 2010 er helgað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun í allri Evrópu. Þetta verkefni er á vegum Evrópusambandsins og er Félags- og tryggingarmálaráðuneytið tengiliður fyrir hönd Íslands. 8. maí var haldinn fundur í „þjóðfundarstíl“ sem um 90 manns tóku þátt í. Fundargestir töldu VIRÐINGU, HEIÐARLEIKA OG SAMHYGGÐ vera helstu gildi og mannkostir sem þeir vilja að einkenni framkomu fólks hvert við annað í samfélagi okkar. Allir tóku í raun og veru undir innihald Biblíuversins „Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér þeim gera.“ (Matt. 7.12)
Mikilvægt er að jafna kjör fólks og að viðurkenna þann vanda sem atvinnuleysi veldur en það og ósanngjarnar skuldir eru helstu fátæktargildrurnar í dag. Kallað var eftir samábyrgð alls samfélagsins og að atvinnu væri skipt milli fólks. Enn sem fyrr standa margir öryrkjar höllum fæti og hugmynd kom fram um að stofna talsmannsembætti bótaþega. Í dag eru um 16.000 manns atvinnulausir hér á landi sem eru rúm 9% íbúa.
Mörg félagasamtök vinna með ráðuneytinu m.a. Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði krossinn
Þá taka samtökin Eurodiaconia þátt í þessu verkefni en kirkjan er aðili að þeim samtökum.
Ragnheiður Sverrisdóttir, 17/5 2010 kl. 16.12