Hjálparstarf og sjálfboðaliðar
Það er alltaf nóg að gera hjá Innanlands aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar. Félagsráðgjafar taka á móti umsóknum og hitta umsækjendur áður en úthlutun er ákveðin. Algengast er að fólk fái mat en einnig er hægt að fá föt og aðstoð við annað sem nauðsynlegt getur talist en það er metið út frá tekjum og aðstæðum hvers og eins.
Sjálfboðaliðar vinna mörg störf í matarbúrinu við að taka upp vörur, setja í hillur, frysti eða kæli. Þá þarf að setja í poka eftir því hve stór fjölskylda hvers umsækjenda er. Þetta er mikil vinnan en margar hendur vinna létt verk. Fleiri sjálfboðaliðar eru velkomnir í hópinn. Hjálparstarfið er með síma 528 4400 einning má hafa samband við atli@help.is
Ragnheiður Sverrisdóttir, 28/5 2010 kl. 17.25