Djáknafélag Íslands

 

Starfsþjáflun djáknanema

Djáknanemar hafa verið í starfsþjálfun í allan vetur. Í maí var stofnanakynning þar sem kirkjan sem stofnun var kynnt. Farið var í gegnum lagalegt umhverfi og skipulag kirkjunnar, starfsemina á Biskupsstofu og einnig í heimsóknir til Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Hjálparstarf kirkjunnar, Kristniboðssambandið og Skálholtsútgáfuna.  Djáknanemar fara út á vettvang og eru í sem svarar 4 vikur annað hvort í söfnuði eða á stofnun undir handleiðslu djákna. Nemendur verða oft undrandi á því fjölbreytilegu starfi sem er í sóknunum og þeirri þjónustu sem veitt er á hjúkrunarheimilum og sjúkrahúsum. Mikil áhersla er lögð á að taka þátt í starfi kirkjunnar og vera virkur þátttakandi í helgihaldi  til eigin uppbyggingar.
Á myndinn er hópurinn sem tók þátt í stofnanakynningunni 17.- 20. maí

Ragnheiður Sverrisdóttir, 25/5 2010 kl. 14.46

     

    · Kerfi RSS