Djáknafélag Íslands

 

Laus staða æskulýðsfulltrúa

Sóknarnefnd Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði auglýsir eftir æskulýðsfulltrúa í 50 starf. Umsóknarfrestur er til 28. ágúst. Í auglýsingu frá kirkjunni stendur:

Ástjarnarkirkja í Hafnarfirði óskar eftir að ráða æskulýðsfulltrúa í 50% starf til að taka við öflugu starfi sóknarinnar með börnum og unglingum. Krafist er djákna- eða guðfræðiprófs, uppeldismenntunar eða annarrar menntunar sem nýtist í starfi. Reynsla af æskulýðsstarfi er skilyrði. Starfsmaður þarf að hefja störf 1. september.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist til Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði fyrir 28. ágúst, merkt ,,Æskuýðsfulltrúi”

Sóknarnefnd Ástjarnarsóknar

Við hér á vef DÍ bendum á að nálgast má upplýsingar um samning Launanefndar Þjóðkirkjunnar við BHM / Fræðagarð á vefnum og hvetum við bæði umsækjendur og sóknarnefnd til þess að gæta þess að laun séu ekki lægri en um getur í þeim samningi. Skoða samning.

Merki:

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 20/8 2010 kl. 11.44

     

    · Kerfi RSS