Djáknafélag Íslands

 

Námskeið í sálgæslufræðum á haustmisseri

Umsóknarfrestur vegna námskeiða í sálgæslufræðum hjá Endurmenntun HÍ hefur verið framlengdur til 3. september. Um tvö námskeið er að ræða, annars vegar námskeiðið ,,Siðfræðileg álitamál og sálgæsla við lífslok” sem er haldið í samstarfi við guðfræði- og trúarbragðafræðideild, hugsvísindadeild og Siðfræðistofnun HÍ. Hins vegar um námskeiðið ,,Dulúð og kristin íhugun” sem haldið er í samstarfi við guðfræði- og trúarbragðafræðideild.

Á námskeiðinu ,,Siðfræðileg álitamál og sálgæsla við lífslok” er fjallað um siðfræðileg álitamál sem gjarnan vakna við meðferð deyjandi sjúklinga, svo sem hvenær réttlætanlegt sé að hefja ekki eða hætta meðferð, um rétt sjúklinga og aðstandenda til að hafna meðferð, um réttmæti líknardráps og um líknarmeðferð. Einnig er fjallað um álitamál varðandi skilmerki dauða og um líffæraflutninga. Áhersla er lögð á greiningu raunhæfra dæma og umræður um þau. Námskeiðið er einkum ætlað fólki með háskólapróf eða sambærilega menntun á sviði kirkjustarfs, heilsugæslu, kennslu, félagsþjónustu og löggæslu. Námskeiðið er 8 (ECTS) einingar á meistarastigi og má meta sem hluta af námi til MA prófs í guðfræði eða náms í starfstengdri siðfræði á vegum heimsspekiskorar. Umsjón hafa Salvör Nordal og Vilhjálmur Árnason. Nánari upplýsingar og skráning hér

Á námskeiðinu ,,Dulúð og kristin íhugun” er fjallað um kristnar og austrænar dulhyggjuhefðir (mystik) og íhugun út frá guðfræðilegu, félagslegu og sálfræðilegu sjónarhorni, þá sérstaklega íhugun og dulúð í helgihaldi og trúarlífi. Þátttaka í kyrrðardögum í Skálholti er hluti af námskeiðinu. Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu þar sem nemendur gera grein fyrir völdu efni. Námskeiðið er einkum ætlað fólki með háskólapróf eða sambærilega menntun á sviði kirkjustarfs, heilsugæslu, kennslu, félagsþjónustu og löggæslu. Umsjón hefur Dr. Pétur Pétursson. Námskeiðið er 6 (ECTS) einingar á meistarastigi og má meta sem hluta af námi til MA prófs Nánari upplýsingar og skráning hér

Merki: , ,

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/8 2010 kl. 14.46

     

    · Kerfi RSS