Dagur kærleiksþjónustunnar 2011
Dagur kærleiksþjónustunnar í þjóðkirkjunni verður haldinn 18. september. Í ár er athyglinni beint að starfi sjálfboðaliða sem fást við margvísleg verkefni í kirkjunni.
Sjálfboðaliðar taka þátt í öllu starfi kirkjunnar, í stjórnun, fræðslu, boðun, tónlist og kærleiksþjónustu. Sjálfboðaliðar starfa í sóknarnefndum sem bera meðal annars ábyrgð á rekstri og umsýslu sóknanna og kirkjuhússins. Sjálfboðaliðar taka þátt í heimsóknarþjónustu, samtölum, barna- og æskulýðsstarfi, og aðstoða við kirkjustarfið á margvíslegan hátt. Þá er þéttriðið stuðningsnet sjálfboðaliða sem starfar við innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.
Í tilefni dagsins verður útvarpsguðsþjónusta frá Bessastaðakirkju kl. 11 með þátttöku sjálfboðaliða úr sókninni. Að henni lokinni verður boðið til samveru í safnaðarheimilinu Brekkuskógum, þar sem Bessastaðasókn verður afhent viðurkenning í tilefni af Alþjóðaári sjálfboðaliðans en sóknin hefur sett eflingu sjálfboðastarfs í forgang í starfi sínu og uppbyggingu. Að viðurkenningunni standa Evrópusamtök kærleiksþjónustunnar, Eurodiaconia, en fulltrúi þeirra verður viðstaddur athöfnina.
Ragnheiður Sverrisdóttir, 10/9 2011 kl. 17.53