Djáknafélag Íslands

 

Sjálfboðaliðar fá viðurkenningu

Bessastaðasókn fékk viðurkenningu og þakklæti  fyrir öflugt sjálfboðastarf á degi kærleiksþjónustunnar 18. september. Afhent var innrammað skjal frá Eurodiaconia sem biskup Íslands undirritaði. Alls eru um 60 manns sem vinna margvísleg verkefni sem sjálfboðaliðar. Níu eru  í sóknarnefnd, sjö í sunnudagaskólanum, sjö í starfi aldraðra, tvö í kirkjustarfi á frístundaheimili, einn í fermingarfræðslu, átta  á sumarnámskeiðum, ein annast tólfsporastarfið og 24 eru í Álftaneskórnum. Launað starfsfólk vinnur með sjálfboðaliðunum en án þeirra gæti söfnuðurinn ekki haft allt það fjölbreytta starf sem unnið er í söfnuðinum. Presturinn, sr. Hans Guðberg Alfreðsson og djákninn, Gréta Konráðsdóttir eru stolt yfir þessum frábæru samstarfsmönnum sínum og segja að félagasamtök á Álftanesi leggi einnig mikið af mörkum en margir eru bæði vikir á þeim vettvangi og í kirkjunni.

Ragnheiður Sverrisdóttir, 23/9 2011 kl. 14.59

     

    · Kerfi RSS