Djáknafélag Íslands

 

Myndir frá vígslu djákna- og prests í Skálholtsdómkirkju

Það var hátíð í Skálholti við djákna og prestsvígslu síðasta sunnudag, 2. október. Ný vígður vígslubiskup, sr. Kristján Valur Ingólfsson vígði þær Ástu Ágústsdóttur og Rut G. Magnúsdóttur til djákna og Nönnu Sif Svavarsdóttur til prests. Vígslu lýsti sr. Halldóra Þorvarðardóttir og vígsluvotta voru sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sr. Óskar H. Óskarsson, sr. Ragnheiður Jónsdóttir,  sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sr. Sigurður Arnarsson og djáknarnir Eygló J. Gunnarsdóttir, Fjóla Haraldsdóttir, Ragnheiður Sverrisdóttir. Sr. Egill Hallgrímsson þjónaði fyrir altari ásamt vígslubiskupi. Tónlistin var í höndum Jóns Bjarnasonar organista, kórs Selfosskirkju undir stjórn Jörg Sonderemann.
Kirkjan var fullsetin af fólki úr söfnuðum þeirra sem vígðust, Selfoss, Kársnesi og Lágafelli og að sjálfsöðu voru margir ættingar og vinir viðstddir. Á eftir var kirkjukaffi í skólanum sem allir þáðu enda var veðrið ekki gott, rigning og rok.

Ragnheiður Sverrisdóttir, 7/10 2011 kl. 11.06

     

    · Kerfi RSS