Djáknafélag Íslands

 

Ráðgjafa – og sálgæslusetur tveggja djákna

Tveir djáknar opnuðu formlega starfssemi sína Heild, ráðgjafa – og sálgæslusetur, í byrjun september og er hún staðsett við Laugarveg 59 á 4. hæð. Þessir frumkvöðlar eru Guðrún Kristín Þórsdóttir og Kristín Sigríður Garðarsdóttir djáknar. Kristín er í mastersnámi í starfs- og námsráðgjöf en Guðrún er starfandi í hlutastarfi í Hátúni í tengslum við Laugarneskirkju og löggiltur leiðsögumaður.

Hugmyndin hjá okkur kviknaði í reiðtúr snemma vors 2010 og síðan fengu við aðstöðu að Hólum um sumarið til að vinna hugmyndir okkar áfram. Hugmyndafræði Heildar og undirbúningur að námsskeiðshaldi vannst vel í því dásamlega og magnaða umhverfi sem Hólar eru. Enda vorum við stöllur alltaf ákveðnar í að tengja starfssemi okkar náttúrunni, kröftum hennar svo og vináttunni.

Báðar höfum við tekið virkan þátt í 12 spora vinnu innan kirkjunnar og utan og því lá beinast við að undirbúa námskeið sem byggði að einhverju leyti á þeirri vinnu. Jafnframt er hugmundafræðin á bak við starfssemina 12 sporin og sú reynsla sem við höfum af þeirri góðu og markvissu vinnu, sem hefur hjálpað svo mörgum til betra og farsælla lífs.

Reynsla okkar er líka sú að þeir sem fá mest út úr vinnu í 12 sporunum eru þeir sem sækja jafnframt viðtalstíma til að vinna sig í gegnum sporin.

Spurningar vöknuðu hjá okkur, hvað verður um það fólk sem kemur á kynningarfundina og hverfur svo á braut? Hvað verður um þá þátttakendur sem detta út á miðri önn? Með þetta í huga undirbjuggum við styttra fjögurra kvölda námsskeið út frá 12 sporunum og fyrri reynslu. Farið verður á stað með slíkt námsskeið í byrjun nóvember.

Heild sinnir aðallega viðtölum við konur, en það er ekki þar með sagt að karlar séu ekki velkomnir líka. Reynsla okkar liggur aðallega hjá konum og í þeirra reynslu og lífssögu. Við horfum m.a. til aðstandenda langveikra, fólki sem er á krossgötum í sínu lífi vegna veikinda, áfalla eða ofbeldis af ýmsum toga.

Við viljum hvetja djákna og annað starfsfólk kirkjunnar til að láta fólk vita af starfssemi okkar. Heild veitir ráðgjöf, sálgæslu og leiðsögn í einkaviðtölum og hægt er að hafa samband í gegnum heimasíðu Heildar, http://heild.is/ og í síma er 445-5552

Með kærum kveðjum Guðrún Kristín Þórsdóttir  og Kristín Sigríður Garðarsdóttir

Ragnheiður Sverrisdóttir, 21/10 2011 kl. 11.53

     

    · Kerfi RSS