Djáknafélag Íslands

 

2001: Kærleiksþjónusta í skóla

Grein eftir Þórdísi Ásgeirsdóttur, djákna.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 20. mars 2001

 

Djáknar eru vígðir þjónar kirkjunnar og embætti djákna er viðurkennt sem þriðja embættið innan hennar. Djáknaembætti er allt annað en prestsembætti og ætti því ekki að rugla þeim saman.

Sóknarprestur er alltaf forstöðumaður safnaðarins og djákni er undirmaður hans. Aftur á móti vinna þessir fagaðilar og samstarfsfólk að sama markmiði en það er að boða fagnaðarerindi Drottins, í orði og verki, okkur mönnunum til hjálpræðis og Guði einum til dýrðar.

Djáknar þjóna við kærleiksþjónustu kirkjunnar og sinna almennu safnaðarstarfi í sóknum landsins svo sem barna-og æskulýðsstarfi, sjá um helgistundir, sinna foreldraþjónustu, heimsóknarþjónustu og þjónustu við aldraða.

Menntun djákna er þrenns konar:
- BA í guðfræði og djáknamenntun sem eru 90 einingar og 8 vikna starfsþjálfun í söfnuði.
- Önnur háskólagráða að viðbættu 30 eininga starfsnámi í guðfræðideild Háskóla Íslands og 8 vikna starfsþjálfun í söfnuði
- Menntun frá viðurkenndum djáknaskólum á Norðulöndum eða í Þýskalandi að viðbættri setu í séríslenskum fögum í guðfræðideild H.Í.

Vinaleið í Varmárskóla
Ég var vígð til Lágafellssóknar í Mosfellsbæ fyrir rúmu ári. Þar þjóna ég m.a. barna- og æskulýðsstarfi, foreldraþjónustu, heimsóknarþjónustu og kristilegri sálgæslu.
Auk þess hef ég umsjón með kærleiksþjónustu í Varmárskóla sem ég kalla Vinaleið.

Vinaleið er sálgæsluþjónusta við nemendur skólans. Hún er fyrirbyggjandi þjónusta og er hluti af stoðkerfi skólans. Þjónustan felst í sálgæsluviðtölum við nemendur og stuðningi við kennara og
foreldra. Með sálgæsluviðtölum er leitast við að styrkja sjálfsmynd nemenda, veita stuðning, gera heilt, leiðbeina og sætta. Vinaleið er tímabundin samfylgd þar sem djákni veitir virka nærveru og hlustun, en markmið sálgæslu er að eiga samfylgd með öðrum einstaklingi, rjúfa einangrun sem erfiðleikar og þjáningar valda. Erfiðleikar og þjáningar geta verið af mörgum orsökum t.d. vegna stríðni, eineltis, höfnunar, missis eða veikinda. Í viðtölunum mætir djákni nemanda þar sem hann er
staddur og styður hann til að finna styrk sinn og von. Sálgæsluviðtöl eru stuðningsviðtöl en ekki meðferðarviðtöl og er Vinaleið því ekki meðferðarþjónusta. Góð samvinna er á milli nemendaverndarráðs skólans og djáknans. Í nemendaverndarráði sitja skólastjórnendur, sérkennari, hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur.

Hver manneskja dýrmæt
Vinaleið er almenn og opin sem þýðir að allir nemendur í 1.-6.bekk Varmárskóla, rúmlega 700 talsins, geta nýtt sér þessa þjónustu að vild. Engar skýrslur eru gerðar og þagnarskylda gagnvart nemanda er alger. Boðleiðir eru þrjár:
- Nemandi óskar sjálfur eftir að koma í Vinaleið,
- Kennari biður um viðtal fyrir nemanda sinn
- Foreldri óskar eftir því að barn þess fari í viðtal.
Sé þess óskað sæki ég nemanda inn í bekk og viðtalið fer fram á skrifstofu minni í skólanum. Hvert viðtal er 40 mínútur og fjöldi viðtala fer eftir þörfum hvers og eins. Viðtöl við foreldra eru oftast í
síma en samráðsfundir við kennara eru í skóla á skólatíma. Þess má geta að á tveimur vetrum hafa tæplega tvö hundruð börn komið í Vinaleið og viðtölin við þau eru rúmlega þrjú hundruð. Sýnir það að Vinaleið er vinsæl og vel nýtt af nemendum skólans. Starf Vinaleiðar skilar árangri svo eigi verður um villst og skólastjórnendur, kennarar, annað starfsfólk skólans svo og foreldrar hafa lýst yfir ánægju sinni með kærleiksþjónustuna fyrir nemendur.

Stuðlað enn frekar að velferð nemenda
Það var Birgir D. Sveinsson, þáverandi skólastjóri Varmárskólans, sem ruddi þessari þjónustu braut í febrúar 1999 og síðan hefur hún verið föst staða í skólakerfi Mosfellsbæjar. Sýnir það framsýni og metnað hjá stjórnendum skólamála í Mosfellsbæ að leita nýrra leiða til heilla fyrir nemendur sína og að nýta starfskraft kirkjunnar til kærleiksþjónustu fyrir nemendur í Varmárskóla.

Höfundur er leikskóla-og grunnskólakennari B.Ed. og er með 30 eininga
djáknamenntun frá Háskóla Íslands.

 

· Kerfi RSS