2003: Kynning á djáknaþjónustunni
Kynning á djáknaþjónustunni eftir Nönnu Guðrúnu Zoega, djákna
Kynningin var flutt í guðsþjónustu á kærleiksdegi kirkjunnar í Vídalínskirkju í 14. september 2003
Komið þið öll sæl !
Þessi sálmur sem við heyrðum hér á undan er þýddur úr sænsku af Hr. Sigurbirni Einarsyni biskup, en hann hefur tileinkað sálminn djáknaþjónustu kirkjunnar.
Yndislegt fyrir unga stétt að vera ýtt úr hlaði með þessum biðjandi orðum
Í dag er kærleiksdagur kirkjunnar og er við hæfi að kynna djáknaþjónustu hennar.
Öll þjónusta djákna er tengd kirkjunni, hvort sem við störfum í söfnuði eða stofnun, þegar ég segi stofnun á ég við sjúkrahús, skóla, hjúkrunarheimili eða félagasamtök.
Kærleiksþjónusta er að ganga í fótspor Jesú Krists, frá altari hans þar sem við fáum náð og blessun út í söfnuðinn.
Þegar djákni er vígður til starfa, er lesin ritningarlestur úr fyrra Pétursbréfi:
,,Þjónið hver öðrum með þeirri náðargáfu, sem yður hefur verið gefin sem góðir ráðsmenn margvíslegrar náða Guðs. Sá sem talar, flytji Guðs orð, sá sem þjónustu hefur, skal þjóna, eftir þeim mætti, sem Guð gefur, til þess að Guð vegsamist í öllum hlutum fyrir Jesú Krist. Hans er dýrðin og mátturinn um aldir alda.”
Orðið djákni er dregið af gríska orðinu ,,diakonons” sem merkir þjónusta. Innan kirkjunnar merkir orðið díakoní, …líknar og kærleiksþjónusta.
Oft er það lagt að rökum fyrir djáknaþjóustu …og djáknar nefndir eftirmenn hinna sjö, sem talað er um í
6. kafla postulasögunar,… Þrátt fyrir, að hvergi séu þeir nefndir djáknar, en þar segir: ,,ekki hæfir að við hverfum frá boðum Guðs orðs til að þjóna fyrir borðum. Finnið því , bræður, sjö vel kynnta menn úr yðar hópi sem fullir eru anda og visku. Munum vér setja þá yfir þetta starf.”
Á annari öld e.k. er farið að tala um þrjú embætti kirkjunnar, embætti biskups, prests og djákna og var kærleiks- eða líknarþjónustan í höndum djákna.
Síðan tóku klaustrin við þessari kærleiksþjónustu og við störfum djákna.
Með siðbreytingunni vildi Lúther endurreisa þjónustu djákna til að sjá um líknar-og uppeldismál og hann skýrskotaði til fornkirkjunnar þar sem kærleiksþjónustan var í umsjá djákna.
KristjánDanakonungur – III, setti í kirkjuskipun sína á 17. öld, að kirkjusóknir nálægt kaupstöðum skyldu hafa djákna, eiðsvarna þjónar kirkjunnar, sem áttu að kenna almúganum, skipuleggja fátækrahjálp og sinna líknarmálum. En smá saman hvarf djáknaþjónusta alveg hér á landi.
Saga djáknaþjónustunar á Íslandi hefst að nýju þegar Einar Einarsson var vígður til djáknaþjónustu í Grímsey, árið 1960, annar djákni var vígður 1979, en hann tók síðar embættispróf og starfar nú sem prestur.
Tveir aðrir djáknar lærðu og voru vígðir erlendis á árunum 1965 og 1981.
Haustið 1993, var í fyrsta skipti á Íslandi boðið upp á djáknanám við guðfræðideild Háskóla Íslands, 90 eininga BA-guðfr - djáknanám og 30 eininga starfsnám djákna, fyrir hjúkrunarfr, kennara og þá sem höfðu uppeldismenntun.
Í febrúar 1995 voru fyrstu fimm djáknarnir vígðir hér á landi.
Í dag teljum við 24 djákna, þrjá karla og 21. konu, en ein af okkar fyrstu djáknum, Kristín Bögeskov, lést af slysförum nú í sumar.
Djáknar, eru kallaðir til starfa af söfnuði eða stofnun, þegar þeir hafa hlotið viðeigandi menntun og starfsþjálfun. Biskup skipar djákna, vígir hann og setur honum erindisbréf í samræmi við köllun hans og starfsvettvang.
Samkvæmt Limaskýrslunni (bls 48) sem er skýrsla Trúar –og skipulagsmálanefndar Alkirkjuráðsins um, m.m embætti kirkjunnar, er djákni skiilgreindur sem leiðtogi safnaðarins á sviði kærleiksþjónustunnar.
Þar segir um hlutverk djákna:
,,Djáknar eru kirkjunni til stöðugrar áminningar um köllun hennar til að vera þjónn í heiminum. Er djáknar í nafni Krists leitast við að leysa þarfir þjóðfélaga og einstaklinga, eru þeir dæmið um að í kirkjunni er þörf á hvoru tveggja, tilbeðslu og þjónustu.”
Allir djáknar hafa sömu köllun en starfsvettvangurinn er misjafn. Djákni er samkvæmt merkingu orðsins, þjónn er sinnir tilteknum þjónustustörfum bæði innan safnaða og eins á tilteknum stofnunum eða meðal ákveðinna hópa.
Djáknastarfið er sjálfstætt starf, en ekki áfangi að prestembætti.
Djákni á stofnun skal sinna helgihaldi á stofnuninni og kærleiksþjónustu. Þjónusta djákna innan safnaða er við heimsóknaþjónustu, þjónustu við aldraða og á sviði fræðslu og uppeldismála, s. s. barna og æskulýðsstarf, fermingarfræðslu o.s.f.
Djákni sinnir sálgæslu og tekur þátt í sorgarstarfi, guðþjónustu safnaðarins og annast fyrirbænastundir.
Samkvæmt erindisbréfi djákna, er hann samstarfsmaður presta sóknarinnar, starfar í umboði þeirra er ábyrgur fyrir þeim og sóknarnefnd, lýtur umsjón héraðsprófasts og sem vígður þjónn kirkjunnar lýtur hann biskupi og er ábyrgur fyrir honum um þjónustu sína.
Við íslenskir djáknar njótum ekki þeirrar hefðar sem djáknar á hinum norðurlöndunum hafa þ.e. diakonissuhefðarinnar, hinnar gömlu hefðar sem djáknaþjónustan í dag byggir á og gefur svo skýra fyrirmynd á hlutverki stéttarinnar.
Djáknar á Íslandi fá menntum sína í guðfræðideild Háskóla Íslands, undir handleiðslu færustu kennimanna… Það er okkar styrkur.
Okkar stétt er ung stétt reist á nútímanum sem þó byggir á gömlum grunni. Íslenska leiðinn er áþekk leið Luthers forðum, …því að við höfum leitað að grundvelli þjónustunnar í frumkirkjunni með Jesú Krist að leiðarljósi.
Kristur er grunnurinn, kærleiksþjónustan kirkjunnar er aðeins hægt að vinna í hans nafni.
Ég vil ljúka máli mínu með því að lesa tvö vers úr sálminum sem sungin var hér á undan,
Þér skal í hlýðni þjóna Umvef mig elsku þinni,
Þrek mitt allt, vilji, mál. Öll veröld leitar þín.
Þú lífsins ljósið eina, Láttu þá líf þitt finna,
Lýs gegnum mína sál. Sem líta og ná til mín.