2005: Verðlaun til djákna
Djáknunum Unni Halldórsdóttur og Ragnheiði Sverrisdóttur hefur verið veitt verðlaun fyrir að stuðla að eflingu kæleiksþjónustu í íslensku þjóðkirkjunni. Kærleiksþjónusta kirkjunnar er skilgreind sem umhyggja fyrir náunganum grundvölluð á kærleika Krists sem er tjáð í lífi og starfi kirkjunnar.
Það er stofnunin Diakonistiftelsen Samariterhemmet í Uppsölum í Svíþjóð sem veitti þeim þessa viðurkenningu en þær stunduðu báðar djáknanám við þessa stofnun. Unnur útskrifaðist þaðan 1965 og tók djáknavígslu til Hallgrímskirkju sama ár. Ragnheiður lauk djáknanáminu 1980 og vígðist til starfa í Gottsundasöfnuði í Uppsölum en hefur starfað hér á landi frá 1986.
Diakonistiftelsen veitir árlega „hönnorsstipendium“, heiðursverðlaun, til einhvers djákna sem þykir hafa skarað frammúr í starfi sínu sem djákni. Þær Unnur og Ragnheiður hlutu þau fyrir að hafa haft frumkvæði að því að íslenska þjóðkirkjan hóf að kanna möguleika til djáknanáms á Íslandi en innan kirkjunnar hafði um langt skeið verið áhugi á að efla kærleiksþjónustu hennar. Það var 1991. Þá var einnig nokkuð um fyrirspurnir um hvar væri hægt að taka djáknanám. Einnig var talið mikilvægt væri fyrir kirkjuna að mennta fólk til að sinna kæleiksþjónustu (diakoni) og gera hana sýnilegri í störfum kirkjunnar. Guðfræðideild Háskóla Íslands tók upp nám í djáknafræðum 1993 og hafa um 80 manns lokið því.
Unnur og Ragnheiður hafa verið í sambandi við sinn gamla skóla og sagt frá þróun mála hér. Einnig hafa gestir komið hingað og kynnst starfsemi kærleiksþjónustunnar og vexti hennar. Þá kom Inga Bengtzon, djákni, framkvæmdastjóri stofnunarinnar hingað til fyrirlestrahalds í tvígang þegar fyrstu djáknarir voru að feta sig áfram í nýju starfi.
Síðastliðið sumar var hér haldið Norrænt djáknamót og þá vakti hinn öri vöxtur djáknastéttarinnar mikla athygli. Fyrirmyndin er sótt til norrænu kirknanna en þar er löng hefð fyrir starfi djákna.
Í dag eru 23 djáknar að störfum í samtals 19 stöðugildum á Íslandi. Frá 1960 hafa 30 djáknar tekið vígslu. Mun fleiri hafa lokið djáknanámi frá Háskóla Íslands sem gjarnan vilja vinna sem djáknar. Þó hafa nokkur tekið námið sem símenntun til að efla sig í störfum sínum eins og t.d. hjúkrunarfræðingar og kennarar. Djáknar hafa farið til starfa í söfnuðum, á stofnunum og í félagasamtökum. Frá því að djáknar hófu störf hér hefur kærleiksþjónuta kirkjunnar eflst en að sjálfsögðu er það skylda sérhvers skírðs einstaklings að sinna þjónustu við náungann. Það hafa þeir gert alla tíð og prestar sérstaklega og má í því samhengi nefna sérþjónustuprestana.
Verðlaunin eru 16.000 sænskar krónur sem þær skipta á milli sín. Að sögn ætla þær að nota þessa upphæð til að styrkja sig í þjónustunni í kirkjunni og sækja námskeið sem iðulega er boðið upp á í Uppsölum og einnig hér á landi. Þær telja að mikilvægt að uppbyggjast í trúnni og kynna sér nýjar starfsaðferðir og þróun þessarar þjónustu og þannig verða hæfari til að þjóna náunganum.