Djáknafélag Íslands

 

2005: Vinnuhelgi stjórnar

Stjórn DÍ dvaldi síðustu helgi septembermánaðar á Akureyri og átti þar langan og góðan stjórnarfund. Fundarhöldin hófust á föstudegi þar sem að stjórnin hitti Hannes Blandon prófast í Eyjafjarðarprófastsdæmi, Ragnheiði Sverrisdóttur forstöðukonu kærleiksþjónustusviðs Biskupsstofu og Valgerði Valgarðsdóttur djákna á FSA.

 

Starfsemi hins ört vaxandi DÍ verður sífellt fjölbreyttari og að sama skapi fjölgar þeim málum sem koma inn á borð stjórnar félagsins. Fjöldi erinda, umræðupunkta og undirbúningsmála lá fyrir fundinum. Á fundi með sr. Hannesi Blandon prófasti í Eyjafjarðarprófastsdæmi var m.a. ræddir frekari möguleikar á djáknastöðum í prófastsdæminu. Þá sat Valgerður Valgarðsdóttir djákni á FSA fund á laugardagsmorgninum með stjórninni og eftir hádegi á laugardeginum hafði stjórnin tök á því að ræða ýmis brýn mál við Ragnheiði Sverrisdóttur djákna og forstöðukonu kærleiksþjónustusviðs Biskupsstofu.

Í stjórn DÍ eru Jón gjaldkeri, Ragnhildur ritari og Guðrún formaður og voru þau öll mætt á fund hjá varamanni stjórnar sem þetta ritar.

Ákveðið var að færa fyrirhugað málþing til og breyta áherslum á því þannig að hluti fyrirhugaðs efnis yrði tekinn fyrir á félagsfundi í nóvember og mun félagsfólki berast bréf þess efnis á næstu dögum.

Rætt var um fyrirhugaðar breytingar á heimasíðu félagsins og ákveðið að vinna að því að þar yrðu upplýsingar um framhaldsnámsmöguleika djákna, lítil orðabók yfir helstu hugtök kærleiksþjónustunnar, lista yfir B.A. ritgerðir djáknanema auk þess sem gott væri ef hægt væri að senda bréf til stjórnar beint af síðunni.

Lögð voru drög að dagskrá félagsins fram á vor, stefnt að félagsfundi í janúar, málþingi í febrúar, félagsfundi í mars, aðalfundi í apríl og ferð til Akureyrar í vor. Þegar nánari dagsetningar liggja fyrir mun félagsfólki berast bréf um innihaldi og tilefni fyrrnefndra viðburða.

Þá gerði formaður grein fyrir því að gengið hefur verið frá framtíðaraðstöðu fyrir félagið í Grensáskirkju og mun lögheimili félagsins færast þangað á næstu dögum.

Unnið var að reglum um endurmenntunarsjóð félagsins, hugað að siðareglum, endurskoðun laga félagsins, rætt um merki félagsins, rætt um nauðsyn þess að gerður yrði lítill bæklingur um nokkur mikilvæg atriði varðandi störf og þjónustu djákna í samstarfi við kærleiksþjónustusvið, framtíð djáknastarfsins, minnt á norræna þingið í Finnlandi næsta sumar og velt vöngum yfir vettvangsferðir í tengslum við það og fleira.

Fundur sem þessi þjappar ekki aðeins þeim hópi fólks saman sem situr í stjórn félagsins heldur leiðir til þess að öll vinna fær á sig meiri heildarsvip og gerir einstaklingunum kleift að ná allir sama heildaryfirlitinu.

Þegar við kvöddumst á laugardagskvöld, rúmum sólarhring eftir að stjórnarmeðlimirnir að sunnan höfðu lent á Akureyri vorum við sammála um að þessi vinnufundur hefði komið í stað amk tíu stjórnarfunda.

 

· Kerfi RSS