Í flestum kirkjum er vetrarstarfið hafið. Sunnudagaskólar eru byrjaðir, guðsþjónustur haldnar á hefðbundnum tímum, æskulýðs- og fermingarstörfin byrjuð og eldriborgarar safnast saman og vinaheimsókir eru orðnar tíðari.
< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa áfram …
Ragnheiður Sverrisdóttir, 11/9 2007
Dagsetningar fyrir fundi og viðburði Djáknafélags Íslands á haustönn 2007 liggja nú fyrir. Fyrsti fundur haustsins verður fimmtudagskvöldið 13. september kl. 20:00 í Fella og Hólakirkju. Laugardaginn 29. september verður svo farið í heimsókn í Hrútafjörðinn. Félagsfundir verða svo í Grensáskirkju mánudaginn 15. október og mánudaginn 12. nóvember. Báðir fundirnir hefjast klukkan tólf í Grensáskirkju. Jólafundur félagsins verður svo á Akranesi í upphafi desember. Nánari upplýsingar og fundarboð munu berast félagsfólki þegar nær dregur hverju sinni.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 22/8 2007
Kapella þar sem fólk getur leitað kyrrðar verður í boði á Menningarnótt 18. ágúst á Biskupsstofu, Laugavegi 31. Kapellan verður opin frá kl. 13 til 18.
Lesa áfram …
Ragnheiður Sverrisdóttir, 13/8 2007
,,Sá sem sækir guðsþjónustuna þarf að fá kraft og bjartsýni til að ganga aftur út í hið daglega líf sem hluti af samfélagi sem hefur kraft, þor og áræði til þess að standa saman í gegnum súrt og sætt.” segir Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju meðal annars í pistli á trú.is
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 5/7 2007
Tilraunaútgáfa af handbók sóknarnefnda er nú aðgengileg á vefnum. Þar er meðal annars að finna pistil eftir Ragnheiði Sverrisdóttur sem nefnist: ,,Kærleiksþjónusta - ábyrgð og þátttaka sóknarnefnda”. Í pistlinum segir Ragnheiður meðal annars: ,,Það er mikilvægt að skipuleggja kærleiksþjónustuna til að sem mest og best þjónusta sé veitt. Þar gegna sóknarnefndir lykilhlutverki. Þær ráða fólk til starfa og móta þannig starfsáherslur safnaðarins.”
Lesa pistilinn í handbók sóknarnefnda.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 22/6 2007
Reiknað er með 300.000 gestum á opnunarkvöld þýsku Kirkjudaganna sem hefjast nú í kvöld, miðvikudagskvöldið 6. júní í Köln í Þýskalandi. Á meðal þessara gesta eru um 100.000 gestir sem munu taka virkan þátt í dagskrá Kirkjudaganna fram á sunnudag. Þeirra á meðal einnig Pétur Björgvin djákni Glerárkirkju og varamaður í stjórn DÍ, en lesa má meira um Kirkjudaga á annál hans.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 6/6 2007
Býr Íslendingur hér? var eitt sinn spurt. Ef spurt er á Íslandi í dag á svarið að vera já. Við þurfum að taka höndum saman þannig að öllu líði vel á þessari litlu eyju okkar norður við heimskautsbaug. Nóg er myrkrið og kuldinn þó svo að við manneskjurnar aukum hann ekki.
Lesa áfram í pistli á trú.is sem nefnist ,,Ísland fyrir hvaða Íslendinga?”
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 11/5 2007
Ragnhildur Ásgeirsdóttir nýkjörin formaður Djáknafélags Íslands skrifar um starf eldri borgara á trú.is. Þar segir hún frá því sem er framundan í starfinu í kirkjunni, ferð erlendis og ýmislegt fleira. Pistill sem vert er að kynna sér.
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/4 2007
Á aðalfundi í gær, 16. apríl var Ragnhildur Ásgeirsdóttir kjörin formaður en Guðrún Kr. Þórsdóttir lét af störfum eftir fjögurra ára farsæla stjórnarsetu. Þá bættist stjórninni nýr liðsmaður, Kristín Garðarsdóttir. Pétur Björgvin Þorsteinsson var endurkjörinn sem varamaður en Jón Jóhannsson situr áfram í stjórn, kjörtímabil hans rennur út á næsta ári.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/4 2007
Aðalfundir Djáknafélags Íslands er í dag í Áskirkju og hefst kl. 17:00 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Fundurinn er opinn öllu félagsfólki og eru hefðbundin aðalfundarstörf á dagskránni samkvæmt útsendri dagskrá sem send var félagsfólki 1. apríl síðastliðinn.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 16/4 2007