
Hvað er kærleiksþjónusta kirkjunnar? Og hvað vilja söfnuðir og starfsfólk í prófastsdæminu sjá í nánustu framtíð í þjónustu kirkjunnar? Þetta voru spurningarnar sem ræddar voru á málþingi 2. febrúar sl. á vegum Eyjafjarðarprófastsdæmis. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur tók saman stuttan pistil að lokinni ráðstefnunni.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 23/2 2007
Kristur þekkir veg þjáningarinnar. Þegar við hugsum hans síðustu stundir á jörðinni, þá getum við verið viss um að hann veit hvað það er að þjást. Og með því að velja veg þjáningarinnar tekur hann sér stöðu með þeim sem þjást á jörðinni, með flóttafólki, Alnæmissjúkum, konum í ánauð kynlífsþrælkunar, börnum sem líða hörmungar.
Lesa áfram á trú.is …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/2 2007
Á félagsfundi DÍ sem haldinn verður mánudaginn 12. febrúar næstkomandi og hefst kl. 12:15 í Grensáskirkju mun Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir halda erindi sem hún nefnir: ,,Skapandi samfélag í trú og gleði.” Einnig er minnt á að aðalfundur félagsins verður 16. apríl kl. 17:00 - 19:00.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 6/2 2007
Í tilefni af málþingi sem haldið verður á Akureyri 2. febrúar næstkomandi ritar Valgerður Valgarðsdóttir djákni á FSA pistil á trú.is þar sem hún segir m.a.: Í þjónustu sinni vitnar kirkjan um veruleika Guðs sem birtist í Kristi hvort sem þjónustan er fyrir þjóðfélagið í heild eða liður í uppbyggingu innra starfs kirkjunnar.
Lesa pistilinn á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 25/1 2007
Föstudaginn 2. febrúar næstkomandi stendur Eyjafjarðarprófastsdæmi ásamt biskupsstofu fyrir málþingi um kærleiksþjónustu kirkjunnar. Málþingið verður í safnaðarheimili Akureyrarkirkju og stendur frá kl. 13:00 til 17:00, er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Sjá nánar í frétt á vef Eyjafjarðarprófastsdæmis
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 23/1 2007
Áratugur Alkirkjuráðsins gegn ofbeldi stendur frá 2001-2010. Árið 2007 er Evrópa í brennidepli átaksins. Við erum minnt á það með hvatningu frá Alkirkjuráðinu að kirkjan á að vera rödd í samfélaginu sem minnir skýrt og greinilega á að allir hafa rétt á að lifa með virðingu og sæmd, án ótta, án ofbeldis.
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 19/1 2007
Þórdís Ásgeirsdóttir djákni í Lágafellssókn veltir kærleikanum fyrir sér í stuttum pistli hér á vefsvæði DÍ. Þar segir hún hlutverk okkar m.a. vera að: ,,Bera með okkur kærleika hvar sem við erum og hvert sem við förum til samferðafólksins. Bera virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/1 2007
Í jólaprédikun sem birt er á trú.is spyr Pétur Björgvin djákni hvort við viljum hlusta á engilinn sem færir okkur fréttir af fæðingu frelsarans, hvort við sjáum gull-litaðan bjarmann sem gerir gráma hversdagsins bjartari en okkur þorir að dreyma um og hvort við heyrum lofsöng englakórsins, hvort við viljum að hann komi með hljóm inn í líf okkar sem breytir lífi okkar?
Lesa prédikun
kerfisstjori, 25/12 2006
Í pistli á trú.is skrifar Guðrún Kr. Þórsdóttir formaður Djáknafélags Íslands um ferðalag fyrirgefningarinnar. Þar kynnir hún 12 spora starfið og segir m.a.: Fyrirgefning er langt ferðalag, nokkurs konar innri pílagrímsganga og Tólf sporin, Andlegt ferðalag kenna fólki á varfærinn hátt að treysta Guði sem sínum æðra mætti.
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 5/12 2006
Guðrún Kr. Þórsdóttir formaður DÍ fór við þriðja mann á norrænt djáknaþing í Finnlandi dagana 17. til 20. ágúst 2006. Djáknaþjónustan í Finnlandi á sér langa hefð og kynntust íslensku þátttakendurnir mörgum hliðum þess starfs, bæði í gegnum erindi á ráðstefnunni sem og í gegnum vettvangsheimsóknir. Skýrslu þeirra ferðafélaganna má nú nálgast hér á vef DÍ sem word-skjal.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 5/12 2006