Þrír djáknakandídatar og einn guðfræðikandídat fengu staðfestingu á embættisgengi sínu við
brautskráningu úr starfsþjálfun Þjóðkirkjunnar 6. september. Hátíðlega athöfn var í Dómkirkjunni þar sem biskup Íslands annaðist helgistund og afhenti skírteini.
Djáknakandídatarnir eru þær Linda Jóhannsdóttir, Linda Rán Ómarsdóttir og Rut Guðríður Magnúsdóttir. Þá útskrifaðist einnig Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræðikandídat sem því miður gat ekki verið viðstödd. Lesa áfram …
Ragnheiður Sverrisdóttir, 7/9 2011
Formaður DÍ, Nína Björg Vilhelmsdóttir ritar pistil á trú.is í dag. Þar segir hún m.a.:
Kærleiksþjónustan er eitt af kjarnaatriðum kristindómsins og byggir á helgihaldi kirkjunnar, helgihaldi sem mótast af orðum og verkum kærleiksþjónustunnar. Með réttu má því segja að kærleiksþjónustan sé framlengdur armur lofgjörðarinnar inn í hversdaginn.
Lesa pistil á trú.is.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 25/7 2011
Kristný Rós Gústafsdóttir og Þórey Dögg Jónsdóttir vígðust til djákna 15. maí. Einnig hlutu fjórir guðfræðikandídatar prestsvígslu. Sjá myndir hér.
Ragnheiður Sverrisdóttir, 9/6 2011
Tveir djáknar og fjórir prestar verða vígðir til þjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík 15. maí kl. 11. Kristný Rós Gústafsdóttir er ráðin til þjónustu sem djákni í Ólafsvíkur og Ingjaldshólsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi. Hún lauk BA prófi frá guðfræði og trúarbragðafræðideild í djáknafræðum í haustið 2010 og starfsþjálfun djáknanema 2011. Hún hefur starfað að barna- og æskulýðsmálum og starfaði m.a. hjá KFUM og KFUK. Þórey Dögg Jónsdóttir er ráðin til þjónustu sem djákni í Fella og Hólakirkju, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Hún lauk BA prófi frá guðfræði og trúarbragðafræðideild í djáknafræðum í júní 2010 og starfsþjálfun djáknanema sama ár. Hún hefur starfað í mörg ár í Fella og Hólakirkju og meðal annars verið í sóknarnefnd. Um leið vígjast fjórir presta en þrír þeirra fara til starfa í Noregi og einn til Neskirkju. Lesa áfram …
Ragnheiður Sverrisdóttir, 10/5 2011
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar var haldin í gærmorgun. Stjórnin byrjaði á því að skipta með sér verkum og eftir það var farið yfir helstu mál sem liggja fyrir hjá félaginu.
Stjórnin skiptir þannig með sér verkum: Formaður Nína Björg Vilhelmsdóttir, ritari og varaformaður Kristín Axelsdóttir, gjaldkeri Fjóla Haraldsdóttir, meðstjórnendur Ármann Hákon Gunnarsson og Kristín Árnadóttir.
Við hvetjum félagsmenn til að vera virkir í félaginu. Sækja félagsfundi vel og vera ófeimin við að koma með ábendingar, fyrirspurnir tillögur eða annað til stjórnar.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 6/5 2011
Hugræn atferlismeðferð og fjölskyldumeðferð eru námsbrautir í Endurmenntun Háskóla Íslands sem er ætluð fagstéttum sem vinna náið með fólki í margvíslegum aðstæðum lífs þeirra. Þetta nám hafa ýmsir djáknar og prestar stundað og eru þeir sammála um að nám af þessu tagi sé mjög gagnlegt í störfum þeirra. Námið hefst í haust en kynningarfundur verður 17. maí. Sjá nánar hér.
Ragnheiður Sverrisdóttir, 29/4 2011
Prestafélagið og Djáknafélagið verða með menntadag mánudaginn 2. maí kl. 10-14 í Neskirkju
Dagskrá:
10:00 Steinunn I. Stefánsdóttir sálfræðingur: „Vellíðan og ánægja í starfi”.
12:00 Hádegisverður.
13:00 Starfsmannastefna Þjóðkirkjunnar.
Ragnhildur Benediktsdóttir skrifstofustjóri Biskupsstofu.
Umræður og viðbrögð: sr. Guðbjörg Arnardóttir, sr. Sigurður Grétar Sigurðsson,
Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni.
-Kaffi
15:00 Edda Björgvinsdóttir: „Mikilvægi húmors í starfsgleði.
Gunnar Einar Steingrímsson, 26/4 2011
Sunnudaginn 20. mars kl. 11 verða djáknar og djáknakandídatar með guðsþjónustu í Laugarneskirkju. Það er þær Guðrún Kr. Þórsdóttir og Ragnheiður Sverrisdóttir og sem hafa umsjón með henni. Þrír djáknakandídatar þjóna einnig. Guðspjallið verður flutt í frásögn Ólafar I. Davíðsdóttur og Ingibjörg H. Stefánsdóttir predikar. Linda Rán Ómarsdóttir flytur bænir. Lesa áfram …
Ragnheiður Sverrisdóttir, 18/3 2011
Frá Nönnu Guðrúnu formanni Djáknafélags Íslands
Ég minni ykkur á félagsfundinn, þriðjudaginn 15. mars, kl. 20:00 í safnaðarheimili Áskirkju. Við erum svo heppin að fá til okkar, trúfræðinginn, heimspekinginn og
Lúthers sérfræðinginn: Dr. Sigurjón Árna Eyjólfsson, og hann ætlar að flytja okkur fyrirlestur um: „Blessun trúarinnar“. Umræður á eftir. Fjölmennum og látum að okkur kveða. Léttar veitingar
Ragnheiður Sverrisdóttir, 14/3 2011
Aðalfundur Djáknafélags Íslands verður haldinn í Grensáskirkju mánudaginn 18.apríl klukkan 18.00.
Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist stjórn D.Í. a.m.k. þrjátíu dögum fyrir aðalfund. Breytingartillögur verða sendar út með aðalfundarboði.
Stjórn D.Í.
Gunnar Einar Steingrímsson, 8/3 2011