Þórdís Ásgeirsdóttir djákni í Lágafellssókn veltir kærleikanum fyrir sér í stuttum pistli hér á vefsvæði DÍ. Þar segir hún hlutverk okkar m.a. vera að: ,,Bera með okkur kærleika hvar sem við erum og hvert sem við förum til samferðafólksins. Bera virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/1 2007
Í jólaprédikun sem birt er á trú.is spyr Pétur Björgvin djákni hvort við viljum hlusta á engilinn sem færir okkur fréttir af fæðingu frelsarans, hvort við sjáum gull-litaðan bjarmann sem gerir gráma hversdagsins bjartari en okkur þorir að dreyma um og hvort við heyrum lofsöng englakórsins, hvort við viljum að hann komi með hljóm inn í líf okkar sem breytir lífi okkar?
Lesa prédikun
kerfisstjori, 25/12 2006
Í pistli á trú.is skrifar Guðrún Kr. Þórsdóttir formaður Djáknafélags Íslands um ferðalag fyrirgefningarinnar. Þar kynnir hún 12 spora starfið og segir m.a.: Fyrirgefning er langt ferðalag, nokkurs konar innri pílagrímsganga og Tólf sporin, Andlegt ferðalag kenna fólki á varfærinn hátt að treysta Guði sem sínum æðra mætti.
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 5/12 2006
Guðrún Kr. Þórsdóttir formaður DÍ fór við þriðja mann á norrænt djáknaþing í Finnlandi dagana 17. til 20. ágúst 2006. Djáknaþjónustan í Finnlandi á sér langa hefð og kynntust íslensku þátttakendurnir mörgum hliðum þess starfs, bæði í gegnum erindi á ráðstefnunni sem og í gegnum vettvangsheimsóknir. Skýrslu þeirra ferðafélaganna má nú nálgast hér á vef DÍ sem word-skjal.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 5/12 2006
Kirkja dagsins í dag, samfélag kristinna, þarf að nema staðar þar sem hennar er þörf. Með boðskap sínum og breytni er henni ætlað að hafa varanleg áhrif á manneskjuna sem til hennar leitar og samfélagið allt. Þannig nær guðsþjónusta safnaðarins út fyrir múra kirkjubyggingarinnar. Því sérhver kristinn einstaklingur er kallaður til þjónustu, kærleiksþjónustu.
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 27/11 2006
Sem kristin kirkja og kristnir einstaklingar reynum við að fylgja fordæmi Jesú, rétta hjálparhönd og þjóna eftir því sem við höfum burði til. Og Jesús er okkur meira en fyrirmynd. Hann er sá sem við trúum á og hann er sá sem gefur okkur þróttinn. Við komumst ekki langt ef við reynum í eigin mætti að hjálpa, líkna, styðja, hugga
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 13/11 2006
The Nordic Platform of Eurodiaconia kemur saman í Helsinki í Finnlandi dagana 7. og 8. nóvember n.k. Þar mun Djáknafélagið í fyrsta sinn vera með fulltrúa, Hrund Þórarinsdóttur. Stjórn D.Í. fundaði með Hrund og fór yfir dagskrá daganna og umræður. Við fylgjumst með Hrund þessa daga og óskum henni góðrar ferðar og þökkum henni fyrir að taka að sér að vera fulltúi okkar á fundinum, enda verðugur fulltrúi fyrir hönd kirkjunnar á Íslandi.
gudrun.thorsdottir, 5/11 2006
Félagsfundur D.Í. verður haldinn föstudaginn 3. nóvember kl. 12:00 í Grensáskirkju. Sr. Bernharður Guðmundsson kemur og fjallar um kyrrðarstarf í söfnuðum. Boðið verður upp á léttar veitingar.
ingunn.bjork.jonsdottir, 31/10 2006
Í pistli um erindi Gordons Lathrop Hin vígða þjónusta: Fagnaðarerindið í orði og verki í safnaðarlífinu segir m.a. á trú.is: ,,Þannig beri að skilja díakoníuna og allt hennar samhengi sem matarútdeilingu, eða í víðari merkingu, útdeilingu á áþreifanlegri liðveislu (e. concrete relief) sem fæðu fyrir hina fátæku.”
Lesa áfram á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 25/10 2006
Í dag samþykkti Kirkjuþing annars vegar þingsályktun um stefnu Þjóðkirkjunnar á sviði kærleiksþjónustu og hjálparstarfs (15. mál) og hinsvegar þingsályktun um eftirfylgd í söfnuðum (17. mál). Bæði málin snerta störf djákna og eru þeir hvattir til að kynna sér málin nánar.
Sjá nánar á vef Kirkjuþings. - Sjá einnig frétt á kirkjan.is og viðtal við Ragnheiði Sverrisdóttur
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 25/10 2006