Djáknafélag Íslands

 

Já, ég er djákni …

Á trú.is er nú að finna pistil eftir Magneu Sverrisdóttur djákna í Hallgrímskirkju. Þar segir hún meðal annars: ,,Djáknar koma með sína sérmenntun til starfa innan kirkjunnar og þar með víkka þá þjónustu sem fyrir hendi er. [...] djáknar eru ekki „wannabe“ prestar heldur eru þeir djáknar. En betur má ef duga skal ! Díakonía er endalaust verkefni …

Lesa pistil á trú.is

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 27/9 2006

Litróf - fjölmenningarstarf í Breiðholti

Á trú.is er að finna pistil eftir Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna og Toshiki Toma prest. Þar segir m.a.: ,,Misskilningur er til staðar um að kirkjan eigi ekkert erindi við fólk sem aðhyllist önnur trúarbrögð, jafnvel innan kirkjunnar sjálfrar. … nú mótar kirkjan nýja sjálfsmynd sína með tilliti til tilvistar annarra trúarbragða og lífsskoðana.

Lesa pistil á trú.is

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 22/9 2006

Evrópsk kærleiksþjónustusamtök

Eurodiaconia eru Evrópusamtök 35 aðila sem eru með 450.000 starfsmenn á sínum vegum í kærleiksþjónustu í 20 löndum Evrópu. Heidi Paakjær Martinussen aðalritari þessar samtaka var stödd hér á landi í boði DÍ og kynnti m.a. samtök sín.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/9 2006

Málþing um innflytjendamál í Breiðholti

Þann 23. september mun Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni og stjórnarmeðlimur í DÍ halda erindi á málþingi um innflytjendamál í Breiðholti en hún hefur upp á síðkastið unnið ásamt sr. Svavari Stefánssyni og fleirum að undirbúningi nýs verkefnis með innflytjendum í Fella- og Hólakirkju. Skráning á málþingið er í síma 557-3280.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/9 2006

Myndir frá ráðstefnu 15. september

Um 80 manns sóttu ráðstefnuna ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag” sem DÍ stóð fyrir síðastliðinn föstudag. Nokkrar myndir af ráðstefnunni eru nú birtar hér.

Lesa áfram …

fjola.haraldsdottir, 18/9 2006

Ávarp við opnun ráðstefnu

Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni og verkefnastjóri kærleiksþjónustusviðs Biskupsstofu flutti ávarp við opnun ráðstefnu DÍ sem haldin var síðastliðinn föstudag, 15. september. Ávarpið er birt í heild sinni hér á vefnum.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/9 2006

Kærleiksleysi?

,,Gæti það verið að það sé kærleiksleysi sem hrjáir okkur mest? Að sá sem liggur slasaður við veginn sé fyrst og fremst þjáður af því að vera afskiptur?” spurði Ragnheiður Sverrisdóttir í prédikun sem hún flutti síðastliðinn sunnudag.

Lesa prédikun á trú.is

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 13/9 2006

Breytt staðsetning ráðstefnu

Vinsamlegast athugið að af óviðráðanlegum orsökum færist ráðstefna DÍ ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag” yfir í hátíðarsal í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Ráðstefnan hefst eins og áður auglýst klukkan 13:30 föstudaginn 15. september.

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 12/9 2006

Í umræðunni: Kærleikurinn

Í dag birtist í Fréttablaðinu grein eftir Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna við Fella- og Hólakirkju og stjórnarmeðlim DÍ. Tilefnið er ráðstefna DÍ föstudaginn 15. september næstkomandi.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 7/9 2006

Kynning á aðalfyrirlesara 15. september

Heidi Paakjaer Martinussen er aðalfyrirlesari á málþingi DÍ sem haldið verður 15. september næstkomandi og ber yfirskriftina ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag”. Heidi er dönsk og lagði stund á nám í listum, almannatengslum og stjórnmálafræði áður en hún tók að sér það verkefni að halda utan um alþjóðlegu námslínuna í djáknaskólanum í Aarhus. Í dag er hún aðalritari Eurodiaconia. Hér á eftir fer kynning hennar á sjálfri sér og hlutverki hennar:

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 2/9 2006



Djáknafélag Íslands
Grensáskirkju
108 Reykjavík

Stjórn Djáknafélagsins skipa:
Nína Björg Vilhelmsdóttir, formaður
Fjóla Haraldsdóttir, gjaldkeri
Kristín Axelsdóttir, varaformaður og ritari
Ármann Hákon Gunnarsson, meðstjórnandi
Kristín Árnadóttir, meðstjórnandi



Þjóðkirkjan er aðili að Eurodiaconia, evrópskum samtökum þeirra sem starfa á vettvangi kærleiksþjónustunnar