,,Gæti það verið að það sé kærleiksleysi sem hrjáir okkur mest? Að sá sem liggur slasaður við veginn sé fyrst og fremst þjáður af því að vera afskiptur?” spurði Ragnheiður Sverrisdóttir í prédikun sem hún flutti síðastliðinn sunnudag.
Lesa prédikun á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 13/9 2006
Vinsamlegast athugið að af óviðráðanlegum orsökum færist ráðstefna DÍ ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag” yfir í hátíðarsal í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Ráðstefnan hefst eins og áður auglýst klukkan 13:30 föstudaginn 15. september.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 12/9 2006
Í dag birtist í Fréttablaðinu grein eftir Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna við Fella- og Hólakirkju og stjórnarmeðlim DÍ. Tilefnið er ráðstefna DÍ föstudaginn 15. september næstkomandi.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 7/9 2006
Heidi Paakjaer Martinussen er aðalfyrirlesari á málþingi DÍ sem haldið verður 15. september næstkomandi og ber yfirskriftina ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag”. Heidi er dönsk og lagði stund á nám í listum, almannatengslum og stjórnmálafræði áður en hún tók að sér það verkefni að halda utan um alþjóðlegu námslínuna í djáknaskólanum í Aarhus. Í dag er hún aðalritari Eurodiaconia. Hér á eftir fer kynning hennar á sjálfri sér og hlutverki hennar:
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 2/9 2006
Föstudaginn 15. september næstkomandi stendur Djáknafélag Íslands fyrir ráðstefnunni ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag”. Aðalfyrirlesari verður Heide Paakjaer Martinussen frá ,,Eurodiaconia” sem eru evrópusamtök aðila í kærleiksþjónustu.
Nánari upplýsingar
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 1/9 2006
Fyrsti félagsfundur D.Í. verður haldinn n.k. föstudag, 1. september í Grensáskirkju. Fundurinn hefst kl. 12:00 með bænastund. Farið verður yfir undirbúning málþings Djáknafélagsins, sem verður haldið 15. september. Á fundinum verður einnig sagt frá Norræna djáknaþinginu í Finnlandi.
ingunn.bjork.jonsdottir, 31/8 2006
Í tilefni af ráðstefnu DÍ fjallar Pétur Björgvin um kærleiksþjónustuna í pistli á trú.is.
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 31/8 2006
Í pistli á trú.is veltir Hulda Guðmundsdóttir félagi í DÍ giftingu í staðfesta samvist fyrir sér og bendir á að greina þurfi á milli hjúskaparlaga og laga um staðfesta samvist í umræðunni.
Lesa pistil á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 23/8 2006
Ein af þeim spurningum sem nýverið barst trú.is var ,,Hvað er djákni?” Pétur Björgvin Þorsteinsson tók að sér að svara því.
Lesa svarið á trú.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/8 2006
Norræna djáknaþinginu er nú lokið í Finnlandi. Allt gekk vel að sögn Guðrúnar, Jóns og Súsönnu.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/8 2006