Norrænt djáknaþing sett í dag í Lärkkulla
Djáknum bárust kærar kveðjur frá formanni félagsins sem var viðstaddur setningu norræns djáknaþings í Lärkkulla í Finnlandi í dag.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/8 2006
Djáknum bárust kærar kveðjur frá formanni félagsins sem var viðstaddur setningu norræns djáknaþings í Lärkkulla í Finnlandi í dag.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/8 2006
Vígðir djáknar í Þjóðkirkjunni eru aðeins hluti þeirra sem hafa lokið djáknanámi og sinna kærleiksþjónustu. Ein þeirra er Kristín Garðarsdóttir sem útskrifaðist vorið 2005. Pétur Björgvin spjallaði við hana og fékk að heyra um starf hennar og draum hennar að; ,,sá tími komi að þjóðfélagið snúi sér frá veraldar- og peningahyggjunni og snúi sér að hinum raunverulega fjársjóði þessarar þjóðar.”
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 10/8 2006
Í pistli á trú.is veltir Pétur Björgvin, djákni í Glerárkirkju asasóttinni fyrir sér og hvort að sá sem þjáist af asasótt geti gefið öðrum kærleiksstund. En hugtakið ,,asasótt” er sótt í smiðju Sigurbjarnar biskups.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/7 2006
Guðrún Eggertsdóttir sem er vígður djákni og prestur hefur verið ráðin forstöðumaður trúarlegrar þjónustu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og mun hún hefja störf 1. september næstkomandi.
Sjá frétt á vef FSA
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 4/7 2006
Sunnudaginn 25. júní kl. 14:00 vígir biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson, Huldu Maríu Mikaelsdóttur til djákna en hún hefur verið ráðin í 60% starf á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 22/6 2006
Í pistli á trú.is skrifar Eygló Jóna Gunnarsdóttir, djákni í Selfosskirkju um vinaheimsóknir og segir m.a.: ,,Svona heimsóknir gefa ekki einungis þeim sem heimsóttur er, þær gefa einnig þeim sem heimsækir í sjóð minninganna. Gleymum því ekki að maður er manns gaman.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 19/6 2006
Dagskrá Djáknafélags Íslands fyrir veturinn 2006 - 2007 hefur nú verið kynnt félagsfólki. Á haustmisseri verða haldnir fundir fyrsta föstudag í mánuði kl. 12:00 í Grensáskirkju. Auk þess stendur félagið fyrir málþinginu ,,Kærleiksþjónustan og kirkjan í dag” 15. september og sérstakir kyrrðardagar fyrir djákna verða í Skálholti 8. til 11. október.
kerfisstjori, 16/6 2006
Vorfundur Djáknafélags Íslands var haldinn á Akureyri föstudaginn 12. maí síðastliðinn. Formaður félagsins, Guðrún Kr. Þórsdóttir skráði stutta ferðasögu sem birtist nú hér á vefnum.
gudrun.thorsdottir, 18/5 2006
Viltu vinna áhugavert starf í einu fallegasta safnaðarheimili landsins? Keflavíkurkirkja auglýsir starf æskulýðsfulltrúa laust til umsóknar. Starfið verður veitt frá og með 1. ágúst 2006 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða fullt starf og er það til tveggja ára.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/5 2006
,,Staðreyndin er sú að kirkjan hjálpar mörgum en það fer ekki hátt. Góðir og uppbyggjandi hlutir eru almennt ekki fréttaefni.” segir Ragnheiður Sverrisdóttir djákni í pistli á trú.is og bendir á að: ,,Sá sem kemur í messu er að uppbyggja sjálfan sig til að fara út og þjóna náunga sínum.”
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 15/5 2006

Djáknafélag Íslands
Grensáskirkju
108 Reykjavík
Stjórn Djáknafélagsins skipa:
Nína Björg Vilhelmsdóttir, formaður
Fjóla Haraldsdóttir, gjaldkeri
Kristín Axelsdóttir, varaformaður og ritari
Ármann Hákon Gunnarsson, meðstjórnandi
Kristín Árnadóttir, meðstjórnandi
![]()
Þjóðkirkjan er aðili að Eurodiaconia, evrópskum samtökum þeirra sem starfa á vettvangi kærleiksþjónustunnar
· Kerfi ![]()