Djáknafélag Íslands

 

Menntadagur PÍ og DÍ 2. maí kl.10-16

Prestafélagið og Djáknafélagið verða með menntadag mánudaginn 2. maí kl. 10-14 í Neskirkju
Dagskrá:

10:00 Steinunn I. Stefánsdóttir sálfræðingur: „Vellíðan og ánægja í starfi”.
12:00  Hádegisverður.
13:00  Starfsmannastefna Þjóðkirkjunnar.
Ragnhildur Benediktsdóttir skrifstofustjóri Biskupsstofu.
Umræður og viðbrögð: sr. Guðbjörg Arnardóttir, sr. Sigurður Grétar Sigurðsson,
Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni.
-Kaffi
15:00 Edda Björgvinsdóttir: „Mikilvægi húmors í starfsgleði.

Gunnar Einar Steingrímsson, 26/4 2011

Djáknar og djáknakandídatar með guðsþjónustu 20. mars

Sunnudaginn 20. mars kl. 11 verða djáknar og djáknakandídatar með guðsþjónustu í Laugarneskirkju. Það er þær Guðrún Kr. Þórsdóttir og Ragnheiður Sverrisdóttir og sem hafa umsjón með henni. Þrír djáknakandídatar þjóna einnig. Guðspjallið verður flutt í frásögn Ólafar I. Davíðsdóttur og  Ingibjörg H. Stefánsdóttir predikar. Linda Rán Ómarsdóttir flytur bænir. Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 18/3 2011

Blessun trúarinnar

Frá Nönnu Guðrúnu formanni Djáknafélags Íslands
Ég minni ykkur á félagsfundinn,  þriðjudaginn 15. mars, kl. 20:00 í safnaðarheimili Áskirkju. Við erum svo heppin að fá til okkar, trúfræðinginn, heimspekinginn og
Lúthers sérfræðinginn: Dr. Sigurjón Árna Eyjólfsson, og hann ætlar að flytja okkur fyrirlestur um: „Blessun trúarinnar“. Umræður á eftir. Fjölmennum og látum að okkur kveða. Léttar veitingar

Ragnheiður Sverrisdóttir, 14/3 2011

Aðalfundur Djáknafélags Íslands

Aðalfundur Djáknafélags Íslands verður haldinn í Grensáskirkju mánudaginn 18.apríl klukkan 18.00.

Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist stjórn D.Í. a.m.k. þrjátíu dögum fyrir aðalfund. Breytingartillögur verða sendar út með aðalfundarboði.

Stjórn D.Í.

Gunnar Einar Steingrímsson, 8/3 2011

Æskulýðsdagurinn er á sunnudaginn

Það er mikið um að vera í kirkjum landsins á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar sem verður haldinn sunnudaginn 6. mars. Yfirskrift dagsins í ár er Samferða en þá beinum við sjónum okkar að samfélaginu og samfélagslegri ábyrð okkar allra sem einstaklingar og mikilvægi hvers og eins.Útvarpsmessa dagsins verður frá Hjallakirkju. Í mörgum kirkjum verður boðið upp á öðruvísi guðsþjónustur,

Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 4/3 2011

Tími fyrir þjóðgildin

Tökum okkur tíma í samtal, hugleiðingar um það hvernig samfélag við viljum vera, veljum góða hlutskiptið. Látum hversdagsstörfin ekki afvegaleiða okkur frá samtalinu.

Lesa áfram á trú.is

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 7/2 2011

Það er vandi að hjálpa!

Samtök sem vilja styðja efnalitla einstaklinga og fjölskyldur hafa verið mikið til umræðu í samfélaginu. Það er enginn vafi á því að þessi samtök vilja hjálpa fólki sem lent hefur í vanda. Það eru margar leiðir til að hjálpa og það er vandi að hjálpa. Markmiðin eru stundum skýr og stundum ekki. Lesa áfram á trú.is

Ragnheiður Sverrisdóttir, 25/1 2011

Þar sem flestir öryrkjar búa

Árið 2010 var Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun. Félagsmálaráðuneytið auglýsti styrki til að vinna að málefnum fátækra og einangraðra einstaklinga. Guðrún Kristín Þórsdóttir djákni sótti um styrk til starfa meðal öryrkja. Sá styrkur fékkst og er hér skýrsla hennar sem hún flutti á loka ráðstefnu verefnisins 17. desember. 
Ég er þjónandi djákni í Hátúni og er í fyrirsvari fyrir Hátúns Hópinn sem fékk styrk í tilefni af Evrópu árinu gegn fátækt og félagslegri einangrun. Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 20/1 2011

Hátíðarfundur DÍ

Það var gleði hjá djáknum og mökum þeirra sem komu saman á jóla- og nýárfagnaði félagsins í gærkvöldi á Grand Hótel. Formaðurinn Nanna Guðrún leidd veisluna og upphafsorð hennar voru út bókinni Fleiri orð í gleði, bls. 7.:

Ég þakka

að ég þarf að taka til eftir veislu –
það þýðir að ég á vini

fyrir konuna við hlið mér sem syngur falskt-
það minnir mig á að ég hef heyrn

fyrir vekjaraklukkuna sem hringir að morgni-
sem segir mér að ný vinnudagur bíði mín!

Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 14/1 2011

Hátíðarfundur Djáknafélagsins 13. janúar

Stjórn Djáknafélagsins óskar öllum félagsmönnum gleðilegt ár með þakklæti fyrir ánægjulegar samverustundir og  samstarf á liðnu ári.
Jóla og áramótagleði félagsins verður 13. janúar kl. 19:00  á Grand Hótel, Sigtúni,
í sal Háteig, á 4. hæð. Boðið er upp á þriggja rétta matseðill og dagskrá. Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 10/1 2011



Djáknafélag Íslands
Grensáskirkju
108 Reykjavík

Stjórn Djáknafélagsins skipa:
Nína Björg Vilhelmsdóttir, formaður
Fjóla Haraldsdóttir, gjaldkeri
Kristín Axelsdóttir, varaformaður og ritari
Ármann Hákon Gunnarsson, meðstjórnandi
Kristín Árnadóttir, meðstjórnandi



Þjóðkirkjan er aðili að Eurodiaconia, evrópskum samtökum þeirra sem starfa á vettvangi kærleiksþjónustunnar