Djáknafélag Íslands

 

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Ég vil reyna að brjótast upp úr því djúpa hjólfari sem karlremba árþúsundanna situr enn föst í. Þó þykir mér sem það gangi hægt – það að koma sjálfum mér upp úr þessu hjólfari.

segir í pistli sem birtist í dag í Fréttablaðinu og á trú.is í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi.

Lesa pistil á trú.is.

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 4/12 2010

Samvera fyrir syrgjendur 9. desember

9. desember kl. 20 verður samvera fyrir syrgjendur í Grafarvogskirkju. Oft er erfitt að horfa fram til jóla þegar ástvinur hefur fallið frá. Aðventusamveran er sérstaklega hugsuð til að styðja fólk í þeim aðstæðum. Hún er opin öllum aldurshópum.

Á samverunni verða sungnir aðventu- og jólasálmar,

Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 3/12 2010

Nánd - ljóðabók eftir Ragnhildi Ásgeirsdóttur

Nánd nefnist ljóðabók eftir Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna sem kom út á dögunum og er nú komin í verslanir. Ragnhildur starfar sem djákni í Fella- og Hólakirkju og hefur birt nokkur ljóð á vef kirkjunnar, meðal annars eftirfarandi ljóð:

Hlýtt handtak, bjart bros
Á vegi lífsins

Huggun og von,
Nærvera vinar
Gleði og blessun Guði frá
Á vegi lífsins

Friður og ró
Andakt og kyrrð, með þér, ó Guð
Á vegi lífsins

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 2/12 2010

Bók um hjónabandið: „Ást fyrir lífið“ í þýðingu Pétur Björgvins djákna.

Flestir eiga reynslu af því að vera í hjónabandi. Það virðist stundum vera meiri frétt ef fólk heldur áfram að vera gift sama maka en að skilja við hann. Margir spyrja sig hvernig hjónabandið geti orðið betra og nú er komin út bók um hjónabandið sem heitir „Ást fyrir lífið.“
Hún er ætluð fólki sem vill leggja í sjálfsnám og vinnu við eigið hjónaband.

Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 30/11 2010

Traust

Í upphafi Þjóðfundar um nýja stjórnarskrá sem haldinn var nýverið var fjallað um þau gildi sem fundarmenn vildu að lögð yrðu til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Innihald stjórnarskrárinnar var síðan rætt út frá þeim. Það gleður mig að sjá að 94 einstaklingar völdu orðið traust.

Lesa áfram á trú.is

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/11 2010

Hlustun og græðsla vegna kynferðisofbeldis og þöggunar

Bænamessa um hlustun og græðslu vegna kynferðisofbeldis og þöggunar, verður haldin í Langholtskirkju, sunnudaginn 14. nóvember, klukkan 18. Til hennar er boðað til lýsa yfir vilja til að finna leiðir til að lifa saman sem samfélag sem rúmar og viðurkennir alla þá reynslu sem stafar af kynferðisofbeldi. Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 12/11 2010

Djáknanám verði á meistaranámsstigi

Mikill einhugur var á félagsfundi í Djáknafélagi Íslands sem haldinn var í Grensáskirkju í gærkvöldi, mánudagskvöldið 8. nóvember. Þar samþykktu allir viðstaddir einróma ályktun sem lá fyrir fundinum þess efnis að félagið fagnaði því ætlunarverki guðfræði- og trúarbragðafræðideildar HÍ að allt djáknanám verði á meistaranámsstigi. Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 9/11 2010

Félagsfundur 8. nóvember kl. 20:00 um menntamál

Almennur félagsfundur í DÍ verður haldinn í Grensáskirkju mánudagskvöldið 8. nóvember kl. 20:00. Sú breyting er á dagskrá kvöldsins að aðalumræðuefnið verður menntun djákna. Fundarboð með nánari útskýringum hefur verið sent til félagsfólks í netpósti. Ef einhver hefur ekki fengið bréfið er viðkomandi beðinn um að hafa samband við menntafulltrúa DÍ, Pétur Björgvin Þorsteinsson í síma 864 8451.

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 6/11 2010

Vetrarstarf Djáknafélagsins

Félagsfundir Djáknafélags Íslands veturinn 2010 - 2011. Fyrsti fundur verður 8. nóvember kl. 20:00 í Grensáskirkju. Sigurjón Árni Eyjólfsson flytur erindi ,,Trúin og Guð“.
Lesa áfram …

Ragnheiður Sverrisdóttir, 21/10 2010

Ný dögun - Samtök um sorg og sorgarviðbrögð

Vetrarstarf Nýrrar dögunar hefst n.k. fimmtudagskvöld 14. október í safnaðarheimili Háteigskirkju.  Erindi að þessu sinni flytur sr. Halldór Reynisson formaður Nýrrar dögunar og fjallar hann um sorg og sorgarviðbrögð. Samveran hefst kl. 19:30 með opnu húsi þar sem fólk getur komið fengið sér kaffi og spjallað en kl. 20:30 hefst fyrirlesturinn. Samverur Nýrrar dögunar eru öllum opnar. Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 11/10 2010



Djáknafélag Íslands
Grensáskirkju
108 Reykjavík

Stjórn Djáknafélagsins skipa:
Nína Björg Vilhelmsdóttir, formaður
Fjóla Haraldsdóttir, gjaldkeri
Kristín Axelsdóttir, varaformaður og ritari
Ármann Hákon Gunnarsson, meðstjórnandi
Kristín Árnadóttir, meðstjórnandi



Þjóðkirkjan er aðili að Eurodiaconia, evrópskum samtökum þeirra sem starfa á vettvangi kærleiksþjónustunnar