Merki Djáknafélags Íslands

Þann 5. apríl 1995, þegar Djáknafélag Íslands var stofnað, var farið að ræða merki fyrir djákna. Ingibjörg Eldon Logadóttir var fengin til að hanna merkið sem er silfur- og ródíum-brjóstmál þar sem kross og þrír sólstafir eru innan í hring. Hringurinn og krossinn eru gyllt.
Hringurinn er tákn eilífðarinnar,
krossinn er Kristur og sólstafina þrjá má hugsa sér sem hinn þríeina Guð eða eins litúrgíu, martyríu og díakoníu.
Eftirfarandi reglur gilda um notkun á merki Djáknafélags Íslands.
1. Merkið bera aðeins vígðir djáknar. Það er hannað af Ingibjörgu Eldon Logadóttur, tækniteiknara.
2. Við vígslu öðlast djákni rétt til að kaupa merkið, sem er númerað eftir vígsluröð. Merkið fæst hjá Silfursmiðjunni Erni og er smíðað af Ásgeir Reynissyni, gullsmið.
3. Merkið er á bréfsefni DÍ og djáknum er ennfremur heimilt að nota það, t.d. á nafnspjöld og póst sem sendur er í þeirra nafni.
4. Þegar notkun merkisins lýkur hjá viðkomandi djákna þá öðlast DÍ eignarétt á því.