Eyjafjardarprófastsdæmi

 

Sr. Hannes Blandon, prófastur, fer í námsleyfi næsta vetur

Sr. Hanner Blandon, prófastur, verður í námsleyfi frá 1. september 2010 til 31. maí 2011. Biskup Ísland hefur sett sr. Jón Ármann Gíslason, prófast í Þingeyjarprófastsdæmi til að gegna emætti prófasts í Eyjafjarðarprófastsdæmi í námsleyfi sr. Hannesar. Þá hefur sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, verið settur sóknarprestur í Laugalandsprestakalli frá 1. september til 31. maí. Jafnframt mun hann gegna ákveðnum fræðsluverkefnum á vegum prófastsdæmisins og hafa umsjón með vef prófastsdæmisins eins og verið hefur.

Guðmundur Guðmundsson, 2/9 2010

Alfa-námskeið hefjast með kynningarkvöldi 8. sept.

Alfanámskeið verða haldin í haust í samstarfi við KFUM og KFUK á Akureyri. Kynningarkvöld verður miðvikudaginn 8. sept. kl. 20. Það er byrjendanámskeiðið þar sem glímt er við spurninguna: Hver er tilgangur lífsins. Þau Dögg Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur, og Fjalar Freyr Einarsson, grunnskólakennari, leiða það. Þá verður samhliða boðið upp framhaldsnámskeið þar sem verður tekist á við kristna siðfræði: Tíu boðorð á 21. öld. Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, og Bjarni Guðleifsson, líffræðingur, munu leiða þann hluta. Allir eru velkomnir á kynningarkvöldið 8. sept. kl. 20.  Lesa áfram …

Guðmundur Guðmundsson, 30/8 2010

Samkirkjulegt átak gegn kynferðislega ofbeldi

Þriðjudaginn 31. ágúst næstkomandi mun samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga hleypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi. Alls taka 15 trúfélög þátt í átakinu.

Lesa áfram á kirkjan.is

Guðmundur Guðmundsson, 30/8 2010

Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum

Á borði mínu liggur bæklingurinn ,,Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum“ sem Þjóðkirkjan gaf út árið 2003 í íslenskri þýðingu Ragnheiðar Margrétar Guðmundsdóttur. Bæklingurinn hefur að geyma framkvæmdaáætlun sem Lútherska heimssambandið stóð á bak við.

Lesa pistil á trú.is

Pétur Björgvin, 26/8 2010

Þagnarskylda og vígsluheit

Börn sem sæta ofbeldi af hendi þeirra sem helst ættu að veita þeim skjól eru lítilmagnar. Ég get varla hugsað mér meiri lítilmagna en slík börn, varnarlaus og minnimáttar, beitt viðbjóðslegu ofbeldi af þeim sem þau treysta og elska. Prestar sem hafa vitneskju um barnaníð en þegja yfir því eru komnir í lið með níðingunum.

Lesa pistil á trú.is.

Pétur Björgvin, 22/8 2010

Yfirlýsing frá biskupi Íslands um tilkynningaskyldu presta

Fyrirmæli barnaverndarlaga taka af öll tvímæli um tilkynningaskyldu presta að hún gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu. Gengið er út frá því að velferð barnsins hafi forgang. Það er í fullu samræmi við hina kristnu siðfræði og mannsskilning sem setur barnið og velferð þess fremst.

Karl Sigurbjörnsson, 21/8 2010

Kompás - mannréttindafræðsla fyrir ungt fólk

Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir námskeiði í notkun á Kompás - handbók Evrópuráðsins í mannréttindafræðslu með ungu fólki - dagana 29. september til 2. október næstkomandi í Reykjavík. Lesa áfram …

Pétur Björgvin, 20/8 2010

Hólahátíð 2010

Árleg Hólahátíð á Hólum í Hjaltadal verður haldin 13. – 15. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni er hátíðin helguð ungu fólki og er yfirskrift hennar ,,Unga kirkjan”. Hátíðin er skipulögð í samstarfi vígslubiskupsins á Hólum, ÆSKEY og ÆSKÞ. Lesa áfram …

Pétur Björgvin, 11/8 2010

Landsmót æskulýðsfélaga á Akureyri í október

Æskulýðssamband þjóðkirkjunnar stendur árlega fyrir landsmóti æskulýðsfélaga sem er stærsti viðburður í æskulýðsstarfi kirkjunnar á ári hverju. Að þessu sinni verður mótið haldið á Akureyri dagana 15. til 17. október 2010 og gera skipuleggjendur ráð fyrir 700 til 1000 þátttakendum víðsvegar að af landinu, en mótið er opið æskulýðsfélögum sem starfa í kirkjum landsins og unglingadeildum sem starfa á vegum KFUM og KFUK. Síðasti skráningardagur er 1. október. Lesa áfram …

Pétur Björgvin, 11/8 2010

Ályktanir frá Kirkjuþingi

Síðastliðinn laugardag, 7. ágúst var haldið aukakirkjuþing. Til þingsins var kallað til að fjalla um afstöðu kirkjuþings til kröfu ríkisvaldsins um 9% niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar á árinu 2011 vegna aðstæðna í efnahagsmálum landsins. Þingið samþykkti tvær ályktanir sem lesa má á kirkjan.is.

Pétur Björgvin, 9/8 2010



Forsíðumynd:
Ný altaristafla í kapellu Akureyrarkirkju eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur

Kirkjubær við Ráðhústorg
Sími 462 6680

Viðtalstímar:
Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur
Símatími á miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 11-12
Viðtöl eftir samkomulagi
Sími 462 6702 og 897 3302

Jóna Lovísa Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri ÆSKÞ
Viðtöl eftir samkomulagi

Ásta Garðarsdóttir
Umsjónarmaður vinaheimsókna
Þriðjudaga kl. 10-12

Vinnusvæði starfsfólks

Fimmtudagur

Foreldramorgnar í Glerárkirkju hefjast fyrsta fimmtudag í september.

Dagskrá ...