Skýrsla í árbók kirkjunnar 2006
Stundum er sagt að fangelsi sé veröld út af fyrir sig. Lokaður heimur þar sem daglegt líf er í nokkuð föstum skorðum. Fangelsin eru heimur karla að langmestu leyti en konur eru yfirleitt um 5% af föngum þó það geti verið nokkuð breytilegt – jafnvel frá einum mánuði til annars. Alla jafna er meirihluti fanga skipaður tiltölulega ungum körlum og konum (rúmlega þrítugu fólki). Flestir fanganna aflplána styttri dóma (eitt ár eða skemur) en þó hefur langtímaföngum farið aðeins fjölgandi. Þá hefur einnig föngum fjölgað nokkuð sem afplána fíkniefnadóma og er þar bæði um að ræða fíkniefnaneytendur og/eða þá sem standa að innflutningi efnanna. Fangelsin taka um 120 fanga fullskipuð en rúmlega tvö hundruð manns ljúka afplánun ár hvert. Það verður að segjast eins og er að samskipti fanga í milli eru yfirleitt góð þó annað veifið kastist í kekki milli þeirra og stundum alvarlega. Annars eru innbyrðis tengsl fanga og samskipti þeirra í fangelsum hér á landi lítt rannsökuð. Það sem sagt er um þau mál byggir fremur á tilfinningu og því sem ráða má af samtölum við þá hverju sinni. Það liggur í augum uppi að daglegt líf manna í fangelsi reynist mörgum erfitt og kannski ekki síst nú á tímum þegar öll samfélagsgerðin er frjálsari og opnari en áður var. Fangasamfélagið er lokað og lýtur að mörgu leyti öðrum lögmálum en samfélagið utan múranna þó vissir drættir séu sameiginlegir.
Starf fangaprests fer að miklu leyti fram innan þessa lokaða samfélags. Fangaprestur hefur ætíð gert sér far um að kynnast föngunum eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni. Það verður að segjast eins og er að fangarnir eru mjög svo reiðubúnir að ræða við fangaprest og sýna honum ætíð fyllstu kurteisi. Fangaprestur nýtur þess og að almennt traust ríkir í garð kirkjunnar og gætir sín á því að bregðast því ekki. – Fangar eiga greiðan aðgang að fangapresti hvort heldur í gegnum síma eða inni í fangelsunum.
Enda þótt starf fangaprests gangi fyrir sig á líkan hátt frá einu ári til annars þá koma alltaf upp nýir fletir og ný verkefni sem tengjast starfinu með einum hætti eða öðrum. Fangaprestur tekur þátt í því starfi utan fangelsa sem innan sem hann telur að föngunum sé til hagsbóta hvort heldur með tilliti til aukinnar andlegrar vellíðunar fanga eða þeirrar sem skýtur betri stoðum undir umhverfi þeirra.
Samráðsnefnd um málefni fanga var sett á laggirnar á síðasta starfsári að tillhlutan Fangelsismálastofnunar ríkisins. Í nefnd þessari eru fulltrúar frá Fangelsismálastofnun, meðferðarstöðum, forvarnardeild lögreglu, Rauða krossi Íslands, velferðarsviði Reykjavíkurborgar – og fangaprestur. Samráðsnefndin hefur komið saman að jafnaði um mánaðarlega og farið yfir málefni fanga. Nefndin hefur staðið fyrir tveimur ráðstefnum sem tekið hafa á málum er snerta fanga og fangelsa. Augu nefndarinanr hafa einkum beinst að þeim vanda sem á rætur sínar í fíkniefnaneyslu fanga en mjög brýnt er að á þeim málum sé tekið föstum tökum. Ljóst er að tímamót verða í þeim málum hér á landi þegar sú stund rennur upp að sérstök meðferðardeild fyrir fanga tekur til starfa hér á landi.
Fangaprestur er formaður fangahjálparinnar Verndar sem rekur áfangaheimili fyrir fanga sem eru að ljúka afplánun. Vernd og Fangelsismálastofnun gerðu með sér samning fyrir rúmum tíu árum sem segja má að hafi valdið miklum umskiptum á högum þeirra fanga sem sjá hilla undir lok afplánunar. Nú geta þeir lokið allt að átta mánuðum afplánunar sinnar á áfangaheimili Verndar en tími ræðst þó að sjálfsögðu af lengd dóma og vissum skilyrðum. Þetta fyrirkomulag hefur tekist mjög vel og verið í þróun þessi tíu ár frá því að nefndur samningur var undirritaður. Skref í þessari þróun hafa verið tekin af gaumgæfni og ekki rasað um ráð fram. Í þessu starfi Verndar sem öðru hefur fangaprestur átt góð samskipti við Fangelsismálastofnun ríkisins. – Fangaprestur er einnig ritstjóri Verndarblaðsins og situr í húsnefnd áfangaheimilis Verndar en hún kemur saman vikulega.
Þá hefur samstarf fangaprests við önnur félög og samtök sem láta sér annt um málefni fanga verið gott. Þar má nefna Rauða krossinn en hann stendur fyrir heimsóknum í fangelsi af s.k. heimsóknarvinum en þeim er skylt að sækja námskeið til þess að geta tekið þátt í þessu sjálfboðaliðastarfi. Fangaprestur hefur m.a. kennt á þessum námskeiðum. Einkum eru það útlendir fangar sem hafa notið þjónustu heimsóknarvina Rauða krossins. Samstarf fangaprests við Hjálpræðisherinn hefur verið gott en þess má geta að Herinn gefur öllum föngum jólagjafir og hefur fangaprestur séð um að dreifa þeim í fangelsin. Þá er jólafagnaður Verndar haldinn í samvinnu við Hjálpræðisherinn á aðfangadagskvöld og hefur fangaprestur flutt ávarp fyrir hönd Verndar á þessum fagnaði. Vernd gefur einnig öllum föngum jólagjafir og hefur jólanefnd Verndar haf veg og vanda af því starfi undir styrkri forystu frú Hönnu Johannessen. Á annað hundrað manns sækja jólafagnað Verndar og Hjálpræðishersins og hefur útlendingum farið fjölgandi.
Fangaprestur fer reglulega í fangelsin en þau eru fimm: Litla-Hraun, Kvíabryggja, Kópavogsfangelsið, Hegninarhúsið og fangelsið á Akureyri. Fangaprestur leitast við að vera í sem bestu sambandi við starfsmenn fangelsa, fangaverði og yfirmenn Hann sinnir einnig föngum á áfangaheimili Verndar. Þá er fangaprestur prestur réttargeðdeildarinnar að Sogni í Ölfusi og á sæti í Kærleikssjóði Sogns sem getið var um í skýrslu s.l. árs.
Helgihald í fangelsunum var með svipuðu sniði og hin fyrri ár. Aðventustundir voru á Litla-Hrauni og þangað komu ýmsir listamenn við sögu eins og t.d. Páll Rósinkranz og Anna Sigríður Helgadóttir. Jónas Þórir Þórisson, organisti, er þar lykilmaður og kann fangaprestur honum hugheilar þakkir fyrir gott star fog mikinn eldmóð. Kór fanga söng einnig á aðventustundinni undir stjórn sr. Gunnars Björnssonar og er framlag stjórnanda og kórs þakkað. Sr. Gunnar æfir annars kór fanga á Litla-Hrauni og vinnur þar stórmerkilegt starf. Haukur Guðlaugsson, fyrrverandi söngmálastjóri, og prófessor Gunnar Kvaran, sellóleikari, tóku þátt í aðventustund á Kvíabryggju. Þeim eru einnig færðar þakkir fyrir einstakt starf. Það skal ítrekað að öllu þessu fólki, nefndu sem ónefndu, er þakkað fyrir ómetanlegt framlag sem hefur mannbætandi áhrif á alla fanga.
Fjölmargir hafa komið í viðtal á skrifstofu fangaprests og hefur hann einnig iðulega farið í heimahús til að ræða við aðstandendur fanga og þá sem eru á leið til afplánunar. Þess skal getið að óvenjumargir námsmenn bæði úr háskólum og framhaldsskólum óskuðu eftir viðtali við fangaprest á síðasta ári til að fá efni í ritgerðir sínar. Virðist áhugi ungs fólks á málefnum fanga og fangelsa hafa aukist til muna og er það vel.
Fréttabréf fangaprests: Á leiðinni, kom út að venju mánaðarlega og er hægt að lesa pistla þess á heimasíðu fangaprests: http://www.kirkjan.is/annall/fangaprestur Hefur fréttabréfið komið út í átta ár og aldrei fallið út einn mánuður. Allir fangar fá fréttabréfið í sínar hendur sem og þeir starfsmenn refsivörslukerfisins sem þess óska.
Fangaprestur hélt tvö námskeið á Litla-Hrauni. Annað þeirra byggir á bókinni Hver er tilgangurinn? Það námskeið var vel sótt. Námskeiðinu lauk með helgistund og altarisgöngu. Hitt námskeiðið fjallaði um karlmennsku og fangelsi og var síður sótt sem kom fangapresti nokkuð á óvart.
Fangaprestur kom fram í þætti á NFS sem ber heitið Kompás og ræddi málefni fanga. Þar var fjallað um fangelsið á Litla-Hrauni og líðan fanga. Einnig ræddi fangaprestur nokkrum sinnum við blaðamenn Fréttablaðsins almennt um málefni fanga.
Þá hefur fangaprestur sótt fundi hjá félagi aðstandenda fanga sem heitir Aðgát, sem heldur fundi mánaðarlega yfir vetrartímann. Félag þetta var stofnað fyrir nokkrum árum og hélt fundi sína í upphafi í Grensáskirkju. Þetta er kjörinn vettvangur fyrir aðstandendur fanga en þeir vilja stundum gleymast og sitja eftir með sárt ennið. Á fundum þessum ræða þeir mál sína opinskátt og heiðarlega. Víst er að félagið styrkir þá enda sannast þar orð séra Hallgríms: huggun er manni mönnum að.
Á liðnu starfsári var djáknanemi í starfsnámi hjá fangapresti og var það einkar ánægjulegt. Neminn var áhugasamur og duglegur. Starfsnámið skipulagði fangaprestur í samvinnu við Ragnheiði Sverrisdóttur, verkefnisstjóra kærleikssviðs, en samstarf við hana hefur ætíð verið uppbyggilegt og gott.
Erlend samskipti voru að vanda nokkur á liðnu ári. Fangapresti var boðið af alþjóðlegum samtökum, Prison Fellowship, á ráðstefnu í Hong Kong, og fyrir það er þakkað. Þetta var fjölmenn alþjóðleg ráðstefna leikmanna og presta, sem koma að málefnum að fanga. Í alla staði lærdómsrík ráðstefna og var athyglisvert að sjá hve sjálfboðaliðstarf stendur víða föstum fótum. Fulltrúar þessara samtaka á Íslandi eru hjónin Jóhann F. Guðmundsson og Lára Vigfúsdóttir. Hafa þau unnið framúrskarandi gott starf meðal fanga um aldarfjórðungsskeið.
Þá fór fangaprestur á fund fangapresta í Hollandi og einnig þeirra erinda að kynna sér starfsemi s.k. Exouds-samtaka sem reka á kristnum grunni heimili víða í Hollandi fyrir fyrrverandi fanga og þá sem eru að ljúka afplánun – hafa þau náð allgóðum árangri. Forsvarsmaður þessara samtaka kom einmitt til Íslands fyrir ári og flutti erindi um starf þeirra. Heimsótti fangaprestur höfuðstöðvar samtakanna og heimili sem þau reka. Einnig notaði fangaprestur tækifærið og sótti heim Prison Fellowship í Hollandi en forystumaður þeirra hefur einnig komið hingað til lands og m.a. á fund fangaprests. Var m.a. farið í heimsókn í nýlegt fangelsi í Zoetermeer.
Reykjavík 14. ágúst 2006
Hreinn S. Hákonarson, fangaprestur þjóðkirkjunnar




