Skýrsla í árbók kirkjunnar 2008
Í október á síðasta ári var komið á fót meðferðardeild í fangelsinu á Litla-Hrauni. Það var stór áfangi í fangelsissögunni enda hefur stofnun slíkrar deildar verið rædd í mörg ár. Vandi flestra fanga er nátengdur vímuefnaneyslu og því er brýnt að reyna eftir megni að taka á honum innan fangelsis. Þó má ekki ætla að það sé einhver allsherjarlausn því vandinn er flókinn og rætur hans liggja víða. Fangaprestur hefur komið að starfi þessarar deildar með því að halda reglulega fundi með þeim föngum sem þar dvelja. Stuðst er við efni sem fangaprestur tók saman fyrir nokkrum árum og heitir Opinn hringur – lífið út frá kristnu sjónarhorni. Þetta efni hefur m.a. verið notað í Kópavogsfangelsinu. Umræður fara fram um tiltekin mál sem reifuð eru í lesefninu, lesið er úr Ritningunni og beðist fyrir. Fangar hafa tekið þessu afar vel og taka þátt í umræðunni.
Starf þessarar meðferðardeildar hefur gengið vonum framar. Vissulega ganga sumir þar úr skaptinu og eru sendir á aðrar deildir. Sumir þeirra sækja aftur um að koma á meðferðardeildina. Að starfi þessarar deildar koma tveir sérmenntaðir fangaverðir sem halda utan um allt starf hennar, sálfræðingar og áfengisráðgjafi.
Það verður athyglisvert að fylgjast með framvindu þessa starfs og taka þátt í því. Einnig mun það verða spennandi að sjá hvaða árangri starfið skilar þegar til lengri tíma er litið.
Eitt brýnasta verkefnið í fangelsiskerfinu er aðlögun brotamanna að samfélaginu eftir vist í fangelsi. Sú aðlögun krefst sérfræðikunnáttu og reynslu. Aðlögunin getur ekki eingöngu farið fram innan fangelsis heldur verður hún líka að fara fram utan þess. Það kallar á ný viðhorf til afplánunar brotamanna, krefst skilnings samfélagsins og þátttöku. Það er allra hagur að þau sem brotleg hafa gerst við landslög nái að fóta sig aftur hægt og bítandi úti í hinu frjálsa samfélagi. Liður í þessari aðlögun er rekstur meðferðarheimila og áfangahúsa. Miklar umræður og deilur spruttu upp á síðasta ára í kringum nýtt áfangaheimili fyrir heimilislausa í Reykjavík. Voru það einkum nágrannar sem lýstu áhyggjum sínum. Málið fékk farasæla lausn eftir samtöl íbúa og borgaryfirvalda. Annað veifið hafa spjót beinst að áfangaheimili fangahjálparinnar Verndar í Reykjavík. Nágrannar hafa lýst áhyggjum sínum og ótta. Alltaf hefur tekist að finna lausn á slíkum málum með opinskáum skoðanaskiptum.
Liður í betrun fanga er að fangelsin séu eins vel útbúin og kostur er. Í þessu skyni voru töluverðar umbætur gerðar á fangelsinu að Kvíabryggju og það stækkað. Nú geta dvalið þar 22 fangar og eiga konur þess kost í fyrsta skipti að geta afplánað þar. Fangelsið á Akureyri var lokað í nokkra mánuði meðan miklar endurbætur fóru fram á húsakynnum þess. Bæði var það stækkað og öll aðstaða fanga og fangavarða stórbætt.
Starf fangaprests er afar fjölbreytilegt enda þótt starfið sé alla jafna í nokkuð föstum skorðum. Alltaf skýtur upp nýjum og nýjum sjónarhornum í fangelsismálum sem vert er að íhuga. Fjölmiðlar fjalla iðulega um starf fangelsa og reyna að varpa ljósi á innra líf fanga og starfsmanna. Oft er umfjöllunin neikvæð en hefur þó breyst mjög til hins betra frá síðustu áramótum og má þakka það að nýr forstöðumaður var ráðinn tímabundið að fangelsinu á Litla-Hrauni. Margrét Frímannsdóttir hefur bryddað upp á ýmsum jákvæðum nýjungum sem vakið hafa athygli og er vænst að þær skili góðum árangri. Þar er betrun fanga höfð að leiðarljósi og stefnt að meiri þátttöku þeirra í ýmsu sem fram fer innan fangelsis. Hafa til dæmis fangar á flestum deildum Litla-Hrauns tekið að sér matseldina.
Erfiðustu málin sem koma upp í starfi fangaprests eru sjálfsvíg í fangelsum. Á síðasta ári svipti sig lífi ungur fangi á Litla-Hrauni. Vissulega er það fyrst og fremst harmur viðkomandi fjölskyldu en fangasamfélagið stendur líka nánast lamað eftir. Við slík atvik þarf mikillar sálgæslu við. Sú hefð hefur skapast þegar menn farga sér í fangelsum að fangaprestur fer strax á allar deildir ásamt forstöðumanni og ræðir við fanga. Lesið er úr Biblíunni og bænar beðið. Síðan er höfð minningarstund í fangelsinu um hinn látna fanga á sama tíma og útför hans fer fram. Fangaprestur fer til nánustu ættingja og flytur þeim sorgarfregnina.
Fangaprestur tekur þátt í margvíslegu starfi sem tengist fangelsiskerfinu. Þar skal fyrst getið um setu í Samráðsnefnd um málefni fanga en sú nefnd var sett á laggirnar árið 2005 að tilhlutan Fangelsismálastofnunar ríkisins. Í nefnd þessari eru m.a. fulltrúar frá Fangelsismálastofnun, meðferðarstöðum, forvarnardeild lögreglu, Rauða krossi Íslands og velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Samráðsnefndin hefur komið saman að jafnaði um mánaðarlega og farið yfir málefni fanga. Nefndin stóð fyrir morgunverðarfundi í febrúar s.l. þar sem fjallað var um málefni ungra brotamanna.
Fangaprestur er formaður fangahjálparinnar Verndar sem rekur áfangaheimili fyrir fanga sem eru að ljúka afplánun. Vernd og Fangelsismálastofnun gerðu með sér samning árið 1995 sem segja má að hafi valdið miklum umskiptum á högum þeirra fanga sem sjá hilla undir lok afplánunar. Nú geta þeir sem með lengsta dóma eru lokið allt að tólf mánuðum afplánunar sinnar á áfangaheimili Verndar. Þetta fyrirkomulag hefur tekist mjög vel og verið í þróun frá því að nefndur samningur var undirritaður. Skref í þessari þróun hafa verið tekin af gaumgæfni og ekki rasað um ráð fram. Hafa á sjöunda hundrað fangar dvalið á áfangaheimilinu frá því að nefndur samningur var gerður. Þeim föngum sinnir fangaprestur einnig en oft er sagt að heimilið sé næst fjölmennasti afpánunarstaður landsins. Í þessu starfi Verndar sem öðru hefur fangaprestur átt góð samskipti við Fangelsismálastofnun ríkisins.
Fangaprestur er ritstjóri Verndarblaðsins og kemur að jafnaði eitt blað út á ári. Þá situr fangaprestur í húsnefnd áfangaheimilis Verndar en hún kemur saman vikulega.
Þá hefur samstarf fangaprests við önnur félög og samtök sem láta sér annt um málefni fanga verið gott. Þar má nefna Rauða krossinn en hann stendur fyrir heimsóknum í fangelsi af s.k. heimsóknarvinum en þeim er skylt að sækja námskeið til þess að geta tekið þátt í þessu sjálfboðaliðastarfi. Fangaprestur hefur einnig átt mjög gott samstarf við meðferðarstöð Hvítasunnumanna í Hlaðgerðarkoti og flutti m.a. fyrirlestur þar í vor. Samstarf við Hjálparstarf kirkjunnar er sem fyrr hið besta.
Samstarf fangaprests við Hjálpræðisherinn hefur verið gott en þess má geta að Herinn gefur öllum föngum jólagjafir og hefur fangaprestur séð um að dreifa þeim í fangelsin. Þá er jólafagnaður Verndar haldinn í samvinnu við Hjálpræðisherinn á aðfangadagskvöld og flutti fangaprestur ávarp fyrir hönd Verndar á þessum fagnaði eins og undanfarin ár. Vernd gefur einnig öllum föngum jólagjafir
Fangaprestur fer reglulega í fangelsin en þau eru fimm: Litla-Hraun, Kvíabryggja, Kópavogsfangelsið, Hegninarhúsið og fangelsið á Akureyri. Fangaprestur leitast við að vera í sem bestu sambandi við starfsmenn fangelsa, fangaverði og yfirmenn. Hann sinnir einnig föngum á áfangaheimili Verndar sem áður er getið. Þá á fangaprestur sæti í Kærleikssjóði Sogns sem er hollvinasjóður réttargeðdeildarinnar. Fangaprestur er heimilisprestur réttargeðdeildarinnar en þar dvelja að jafnaði um sjö sjúklingar, ósakhæfir brotamenn.
Helgihald í fangelsunum var með svipuðu sniði og hin fyrri ár. Ármann Hákon Gunnarsson, djákni, sér um tónlist í guðsþjónustunum og einnig nokkrir kórfélagar úr kirkjukór Selfosskirkju þegar messað er á Litla-Hrauni. Aðventustund var á Litla-Hrauni og þar komu ýmsir listamenn við sögu. Jónas Þórir Þórisson, organisti, er þar lykilmaður og kann fangaprestur honum kærar þakkir fyrir gott starf og mikinn eldhug. Þá söng Kór fanga einnig á aðventustundinni eins og undanfarin ár. Kórnum stjórnar sr. Gunnar Björnsson af myndarskap og alúð. Kórstarf hans er mikilvægur þáttur í betrun fanga og fyrir það er þakkað af heilum huga.
Fjölmargir koma í viðtal á skrifstofu fangaprests og hefur hann einnig iðulega farið í heimahús til að ræða við aðstandendur fanga og þá sem eru á leið til afplánunar. Þá fer fangaprestur einnig með föngum í heimsóknir á heimili þeirra þegar fjölskylduaðstæður þeirra eru erfiðar. Síðastliðinn vetur fór fangaprestur t.d. tvisvar í mánuði með fanga sem þurfti að dvelja drjúgan hluti úr degi á heimili sínu en makinn var sjúkur.
Fréttabréf fangaprests: Á leiðinni, kom út að venju mánaðarlega og er hægt að lesa pistla þess á heimasíðu fangaprests: http://www.kirkjan.is/annall/fangaprestur. Hefur fréttabréfið komið út í áratug og aldrei fallið út einn mánuður. Allir fangar fá fréttabréfið í sínar hendur sem og þeir starfsmenn refsivörslukerfisins sem þess óska.
Þá ritaði fangaprestur greinar í blöð og í tímarit fanga á Litla-Hrauni.
Fangaprestur er félagi í Prison Fellowship International og tekur virkan þátt í Íslandsdeild þeirra samtaka (Alþjóðasamtök kristinna fangavina á Ísland) sem er undir stjórn Jóhann F. Guðmundssonar og konu hans Láru Vigfúsdóttur. Hafa þau unnið ómetanlegt starf fyrir fanga á Íslandi. Íslandsdeild PF kom öðru sinni upp s.k. englatré í Grensáskirkju á síðustu aðventu í samvinnu við Grensássöfnuð. Þegar englatré þetta var sett upp í fyrsta sinn voru viðtökur afar góðar.
Englatréð er jólatré sem lítil spjöld hafa verið hengd á. Á spjaldi þessu hefur staðið nafn barns sem einhver fangi á. Safnaðarfólk var hvatt til þess að taka eitt spjald og finna litla gjöf handa viðkomandi barni og leggja hana síðan við tréð.
Skemmst er frá því að segja að viðtökur við englatrénu voru mjög góðar og er Grensássöfnuði þakkað kærlega fyrir aðstoðina. Fyrirhugað er að koma englatrénu aftur upp á næstu aðventu í Grensáskirkju.
Þá hefur fangaprestur sótt fundi hjá félagi aðstandenda fanga sem heitir Aðgát, sem heldur fundi mánaðarlega yfir vetrartímann. Félag þetta var stofnað fyrir nokkrum árum og hélt fundi sína í upphafi í Grensáskirkju. Aðgát hefur reynt góður vettvangur fyrir aðstandendur fanga en þeir vilja stundum gleymast og sitja eftir með sárt ennið.
Fangaprestur er oft beðinn um að koma á fundi og kynna starf sitt og ræða tengsl fangelsa og kirkju. Á síðasta ári fór hann þessara erinda fjórum sinnum.
Erlend samskipti voru að vanda nokkur á liðnu ári. Fangaprestur sótti ráðstefnu á Englandi í septembermánuði sem fjallaði um fjölmiðla og afbrotamál. Þá sótti fangaprestur ráðstefnu Prison Fellowship í Toronto í Kanada í júlímánuði.
Reykjavík 5. ágúst 2008
Hreinn S. Hákonarson,
fangaprestur þjóðkirkjunnar




