Til aðstandenda
Fangaprestur sinnir föngum og fjölskyldum þeirra. Aðstandendur eru hvattir til að hafa samband við fangaprest og mun hann styrkja þá eftir megni. Farsími fangaprests er 898-0110 og á skrifstofu 580 0807
Það er ætíð erfitt að vera aðstandandi fanga. Margt sækir á huga aðstandenda og þeir sitja stundum einir með vanlíðan sína og erfiðleika. Oftast er það feimnismál þegar einhver nákominn er kominn í fangelsi. Ýmsar spurningar skjóta upp kolli: Hvað skal segja börnunum? Vinum og félögum? Stundum hefst mikill feluleikur sem getur verið lýjandi. Líf fólks breytist mjög þegar einhver því nákominn fer í fangelsi og áhyggjur af framtíðinni banka upp á. Eitt er nauðsynlegt og það er að tala um málin við einhvern sem hægt er að treysta.
Fangaprestur þjóðkirkjunnar er bundinn trúnaði við öll þau sem hann ræðir við og til þess settur að vera hjá fólki í vanda sem upp kemur þegar nákomnir bíða fangavistar eða eru komnir í fangelsi.
Það er ætíð léttir að tala um málin bæði fyrir aðstandendur og ekki síður fanga sem vita að aðstoðar er leitað. Með því að leita sér aðstoðar sýnir viðkomandi sjálfum sér umhyggju, sem er mikilvægt, og einnig sínum nánasta sem situr í fangelsi eða er á leið þangað.




