Um fangaprestsembættið

Á vegum þjóðkirkjunnar hefur fangaprestur starfað hátt í aldarfjórðung. Í lögum um fangelsi og fangavist nr. 48 frá 1988 segir í 2. gr. að fangelsistofnun skuli sjá um að í fangelsum sé veitt sérhæfð þjónusta eins og t.d. prestsþjónusta. Í lögum um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands, frá 1990, nr. 62, segir í 12. gr. að prestur skuli starfa við fangelsi og hefur honum verið sett erindsbréf skv., 15. gr. sömu laga. Fangaprestur er starfsmaður þjóðkirkju Íslands en starf hans var fyrst sett á laggirnar með lögum frá 1970 og tók hann til starfa í janúarmánuði ári síðar.

Á þessum tæpa aldarfjórðungi sem liðinn er frá því að sérstakur fangaprestur tók til starfa hefur starfið verið að mótast og farið í ákveðinn farveg, sem starfandi fangaprestur hverju sinni hefur talið hæfa. En erindisbréf fangaprests, sem biskup Íslands setur, tilgreinir hlutverk fangaprests og markar því ákveðið umfang. Þar er fyrst að nefna að fangapresti ber að veita körlum og konum sem í fangelsi eru prestslega þjónustu. Þjónusta þessi er skilgreind nánar með vísan til vígslubréfs presta þar sem rætt er um rétta boðun Guðs orðs, meðferð heilagra sakramenta, vitjun og umönnun sjúkra, fátækra og munaðarlausra. Þá er brýnt fyrir fangapresti að hugga, vernda og styrkja fangana svo og vera fjölskyldum þeirra og ástvinum til aðstoðar.

Segja má að þjónusta fangaprests sé einkum fólgin í þremur þáttum og er það í fullri samhljóðan við erindisbréf fangaprests. Í fyrsta lagi er um að ræða þjónustu kirkjunnnar við fanga, í öðru lagi við fjölskyldur þeirra og í þriðja lagi sér fangapresur um hefðbundið helgihald. Skal nú stuttlega litið á hvern þátt fyrir sig.

Fangaprestur heimsækir reglulega öll fangelsi landsins, en þau eru fimm að tölu og þar að auki réttargeðdeildina að Sogni í Ölfusi. Hann hefur leitast við að vera sýnilegur, eins og það er gjarnan orðað, sem felst í því að hann fer um fangelsin og þeir sem vilja geta rætt við hann einslega á klefa sínum eða óskað eftir viðtali við hann með öðrum hætti. Á þetta skal lagður þungi þar sem margur maðurinn hvort heldur hann er frjáls eða ófrjáls leitar fremur til prests sé aðstoðin sýnileg og sem eðlilegur hluti af umhverfinu – og skynamlegur í öllu tilliti. Fangaprestur sinnir fólki, hann sálusorgar eins og prestar taka til orða. Meginhluti þjónustunnar fer fram í samtölum við fanga og er fyllsta trúnaðar gætt. Þessi samtöl geta í raun snúist um allt. Flest þeirra eru einlæg samtöl um andlega líðan og þá oftast einhvers konar vanlíðan í fangelsi, sem á rætur sínar til veru fangans þar eða í áhyggjum hans um fjölskylduna. Fangaprestur hlustar og ráðleggur – hann leitast við að reynast meðbræðrum sínum í þessum erfiðu aðstæðum sem góður bróður. Hann leysir ekki öll vandamál – en mörg vandamál eru leyst einfaldlega með því að hlusta vel og auðsýna væntumþykju. Þjáning verður ekki eins þungbær sé byrðinni dreift.

Skrifstofa fangaprests þjóðkirkjunnar er í Grensáskirkju. Þangað leita aðstandendur fanga og eru mæður og eiginkonur þar í meirihluta. Fangaprestur reynir eftir því sem hægt er að liðsinna aðstandendum með margvíslegu móti. Ekki þarf að tíunda hér þær andlegu hremmingar sem aðstandendur fanga lenda oft í sem og hinar veraldlegu þegar t.d. eiginmaður lendir í fangelsi og spurningar vakna um framfærslu; hvað segja beri börnunum mikið og hvernig sé best að skjóta styrkum stoðum undir hjónabandið í þeim erfiðleikum sem við blasa. Þá koma iðulega á skrifstofu fangaprests menn sem í fangelsi hafa verið og leita eftir stuðningi um stundarsakir og einnig í sumum tilvikum kvíðafullir menn sem eru á leið inn í fangelsi.

Hefðbundið helgihald í fangelsum hefur einkum verið bundið við hátíðar. En hér skulu nefndar bænastundir sem fangaprestur hefur haft að ósk einstakra fanga. Þó nokkuð er um slíkar stundir og má telja þær til einslegrar prédikunarþjónustu. Hefur bókin Hjálparorð fangans oft verið tilefni til slíkra stunda, en það er bænabók ætluð föngum sérstaklega. Skálholtsútgáfan gaf hana út með styrk frá Kristnisjóði. Höfundur bókarinnar er núverandi fangaprestur.

Fangaprestur hefur samband við fjölda fólks í viku hverri og þá einkum fanga og aðstandendur þeirra, sem fyrr er rakið. Hann hefur líka samband við fangelsismálastofnun ríkisins þegar tilefni gefst, einkum félagsmáladeild, og við fangahjálpina, Vernd, sem rekur áfangaheimili á Laugateig 19.

Ekki verður annað séð en að fangar og aðstandendur þeirra telji fangaprestsþjónustuna nauðsynlega, sem og aðrir er fjalla um málefni fanga .