Erindisbréf fangaprests
Erindsbréf fangaprests er frá því 8. nóvember 1994 og er undirritað af sr. Ólafi Skúlasyni, biskupi og hljóðar svo:
Erindisbréf fangaprests Þjóðkirkjunnar
1. gr.
Yður ber að veita prestslega þjónustu körlum og konum í fangelsum þeim, sem rekin eru á vegum ríkisins, þe. fangelsinu á Litla-Hrauni, vistheimilinu Kvíabryggju, Hegningarhúsinu að Skólavörðustíg 9 í Reykjavík, gæsluvarðhaldsfangelsinu að Síðumúla 28 í Reykjavík, fangelsinu að Kópavogsbraut 17, Kópavogi og fangelsinu á Akureyri, svo og öðrum þeim refsivistar- og fangelsisstofnunum, sem ríkisvaldið kann að taka í notkun á þjónustutíma yðar.
2. gr.
Um þjónustu vísast til víglsubréfs yðar, sérstaklega hvaða varðar rétta boðun Guðs orðs, meðferð heilagra sakramenta, vitjun og umönnun sjúkra, fátækra og munaðarlausra. Þetta á við um störf yðar meðal fanga. Er það sérstaklega brýnt fyrir yður að hugga, styrkja og vernda skólstæðinga yðar, sem ófrjálsir eru á ofangreindum stofnunum, með þeim sálgæsluaðferðum, sem samrýmast heilögu prestsembætti, svo og vera til aðstoðar fjölskyldum þeirra og ástvinum.
3. gr.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið mun sjá yður fyrir vinnuaðstöðu og gjöra yður kleift að komast til ofangreindra stofnana, svo oft sem þurfa þykir.
4. gr.
Hvað kirkjulegt skipulag snertir heyrir starf yðar til Reykjavíkurprófastsdæmis vestra
og eigið þér sæti í safnaðarráði þess.
Aths.
Á þjónustutíma núverandi fangaprests hefur gæsluvarðhaldsfangelsið að Síðumúla verið lagt niður og gæsluvarðhaldsfangelsi er nú í sérstakri álmu á Litla-Hrauni. Auk þess hefur réttargeðdeildin að Sogni í Ölfusi tekið til starfa og sinnir fangaprestur henni. Þá heyrir rekstur embættisins nú ekki lengur undir dóms- og kirkjumálaráðuneytið heldur undir biskup Íslands sbr. lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar 1997 nr. 78 26. maí. Í 44. gr. sömu laga segir: Þar sem almennri prestþjónustu verður ekki við komið, svo sem á sjúkrastofnunum, við fangelsi og meðal heyrnarlausra, skal kalla til presta sem að jafnaði hafa sérmenntun til starfans.




