Fella- og Hólakirkja

 

Sumartónar miðvikudagskvöld 30. júní

Miðvikudaginn 30. júní kl. 20 verða aðrir tónleikar í röðinni Sumartónar í Elliðaárdal. Þá mun Tríó Gunnars Hilmarssonar flytja frönsk djasslög og aðra tónlist í anda Django Reinhardt. Tríóið skipa auk Gunnars þeir Jóhann Guðmundsson, gítar og Leifur Gunnarsson, kontrabassi. Gestur kvöldsins verður Gréta Salóme Stefánsdóttir, fiðla. Þetta verða án efa skemmtilegir og líflegir tónleikar!

 

Aðgangseyri er mjög í hóf stillt en verðið á miðanum er 1.000 kr.

Allar nánari upplýsingar um tónleikana og flytjendur þeirra er að finna á heimasíðu tónleikaraðarinnar: http://sumartonar.wordpress.com

Velkomin að njóta góðrar stundar og tökum gesti með í kirkjuna okkar!

 

Svavar Stefánsson, 28/6 2010 kl. 13.37

     

    Fella- og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík. Sími 557 3280 , fax 567 7415 · Kerfi RSS