Fella- og Hólakirkja

 

Guðný Einarsdóttir á tónleikum í Hallgrímskirkju

Organisti Fella- og Hólakirkju verður með tónleika í tónleikaröðinni “Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2010″. Tónleikarnir verða laugardaginn 24. júlí kl. 12 og sunnudaginn 25. júlí kl. 17. Glæsileg orgelverk verða á efnisskránni og ekki er efi að Guðný mun standa vel fyrir sínu. Það væri gaman ef við héðan úr Fella- og Hólahverfum myndum fjölmenna á þessa áhugaverðu tónleika.

Svavar Stefánsson, 22/7 2010 kl. 8.23

     

    Fella- og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík. Sími 557 3280 , fax 567 7415 · Kerfi RSS