Fella- og Hólakirkja

 

Kvöldmessa - Fermingarstörf

Kvöldguðsþjónusta  í Fella- og Hólakirkju kl. 20 sunnudaginn 15. ágúst

Prestur er sr. Svavar Stefánsson. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar úr kór kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng.

Fermingarbörn næsta vors í Fellasókn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðuð til guðsþjónustu. Stuttur fundur verður með þeim eftir guðsþjónustuna þar sem fermingarstörfin í vetur verða kynnt. Fræðslunámskeið fyrir fermingarbörn hefst svo á mánudagsmorgunn kl. 9 í kirkjunni.

Verið innilega velkomin í guðsþjónustuna!

Svavar Stefánsson, 11/8 2010 kl. 11.47

     

    Fella- og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík. Sími 557 3280 , fax 567 7415 · Kerfi RSS