Fella- og Hólakirkja

 

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudaginn 16. nóvember

Sunnudaginn 16.nóvember, sem er næst síðasti sunnudagur kirkjuársins, verður guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur er sr. Svavar Stefánsson. Gídeon félagar koma í heimsókn og kynna starfið.

Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 11/11 2008

Litróf með söngleik

Listasmiðjan Litróf býður öllum til sýningar á söngleik Hauks Ágústssonar um Litlu Ljót föstudaginn 14. nóvember kl. 18 í Fella-og Hólakirkju.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Aðgangur er ókeypis.

Lesa áfram …

Svavar Stefánsson, 6/11 2008

Sjálfsmyndir, söngur og töfrabrögð í fjölskylduguðsþjónustu

Sunnudaginn 9.nóvember, sem jafnframt er kristniboðsdagurinn, verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Prestar eru Sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Jón Víðis töframaður sýnir töfrabrögð. Listasmiðjan Litróf sýnir atriði.

Yngstu börnin í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla hafa verið í heimsókn hjá okkur í vikunni í tilefni af 20.ára vígsluafmæli kirkjunnar

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 4/11 2008

Látinna ástvina minnst á allra heilagra messu

Sunnudaginn 2.nóvember, allra heilagra messu, verður guðsþjónusta með altarisgöngu kl 11. Prestar eru sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs. Á allra heilagra messu er látinna minnst og er aðstandendum boðið að kveikja á kertum í minningu látinna ástvina.

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 28/10 2008

Guðsþjónusta með altarisgöngu og afmælisbörn mánaðarins í sunnudagaskólanum

Sunnudaginn 26.október, sem er 23.sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 11. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs en með henni þjónar Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni. Organisti er Ásta Haralds. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri er Ásdís Arnalds.

Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma.

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 21/10 2008

Fornir íslenskir sálmar í guðsþjónustu 19.október

Sunnudaginn 19.október verður guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Jóhanna Halldórsdóttir, barokksöngkona, syngur forna íslenska sálma. Organisti er Ásta Haralds.

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 14/10 2008

Tónlistarmessa - Góðir gestir í heimsókn

Tónlistarguðsþjónusta verður haldin sunnudaginn 12.okt. kl.11 í Fella- og Hólakirkju. Þýskur kór og kór kirkjunnar flytja fjölbreytta kirkjutónlist. Stjórnendur kóranna eru Ásdís Arnalds og Heinrich Langelan. Einnig mun Jóhann Stefánsson trompetleikari spila og Hilmar Örn Agnarsson organisti Fella- og Hólakirkju. Sr. Svavar Stefánsson prédikar.

.

Lesa áfram …

Svavar Stefánsson, 9/10 2008

Fjölskylduguðsþjónusta með afmælisbrag

Sunnudaginn 5.október verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Prestar eru sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs. Listasmiðjan Litróf, undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur verður með atriði. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Vegna 20 ára vígsluafmælis kirkjunnar hafa leikskólabörn sóknanna komið í heimsókn til okkar í vikunni og hlökkum við til að fá þau og fjölskyldur þeirra til guðsþjónustu á sunnudaginn.

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 30/9 2008

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli

Sunnudaginn 28.september, sem er 19. sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður guðsþjónusta kl.11. Prestur er Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur. Organisti er Ástríður Haraldsdóttir og kór Fella-og Hólakirkju, undir stjórn Ásdísar Arnalds leiðir almennan safnaðrsöng.

Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. Við heyrum biblíusögu dagsins, það verður mikið sungið og afmælisbörn mánaðarins fá afmælisgjöf

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 24/9 2008

Messa og sunnudagskóli kl 11.00

Sunnudaginn 21.september, sem er 18.sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður messa kl. 11.00. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og kór Fella-og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng.

Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma, með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá.

Lesa áfram …

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 17/9 2008

Kirkjan er opin mán-fim frá kl. 09:00-17:00 og fös kl 9:00-15:00.
Sími: 5573280






Viðtalstímar presta og djákna


Sr. Svavar Stefánsson, sóknarprestur Fellasóknar
mán-fim kl.11-12.
Farsími; 860 2266.
svavar.stefansson@kirkjan.is, Prédikanir og pistlar

Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sóknarprestur Hólabrekkusóknar þri-fös kl.11-12.
Farsími 896 4853.
gudhjor@simnet.is.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni
Viðtalstími eftir samkomulagi
Farsími: 864 0564
ragnhildur@simnet.is.
Pistlar og ljóð


Þórey Dögg Jónsdóttir, djákni
Viðtalstími eftir samkomulagi
Farsími: 698 1206
thj32@hi.is.

VELKOMIN(N) Í ÞJÓÐKIRKJUNA:
- - - - - - - - - - - - - -
SKRÁÐU ÞIG
SKRÁÐU BARNIÐ ÞITT
NÁNARI UPPLÝSINGAR

 

Fella- og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík. Sími 557 3280 , fax 567 7415 · Kerfi RSS