Fella- og Hólakirkja

 

Æskulýðsdagurinn sunnudaginn 4.mars

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Börnin úr Krílanámskeiði kirkjunnar taka þátt í guðsþjónustunni undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Yngri hópur listasmiðjunnar Litrófs leiðir söng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna.

Kvöldvaka kl.20. Prestar sr. Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Svavar Stefánsson. Fermingarbörn og foreldrar þeirra hvött til að mæta. Hljómsveitin White Signal spilar og syngur. Eldri hópur listasmiðjunnar Litrófs leiðir tekur þátt í kvöldvökunni undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Undirleik annast Guðný Einarsdóttir organisti. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

VERIÐ INILEGA VELKOMIN Í FELLA - OG HÓLAKIRKJU

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 28/2 2012

Guðsþjónusta sunnudaginn 26.febrúar 2012

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur djákna.,,Söngstund í sunnudagaskólanum”. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.

Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 21/2 2012

Guðsþjónusta sunnudaginn 19.febrúar 2012

Guðsþjónusta á Konudaginn 19.febrúar kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni prédikar. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur.,,Færum konum gjafir”. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á vöfflur í safnaðarheimili kirkjunnar sem að flottir herramenn baka. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.  Verið innilega velkomin í Fella -og Hólakirkju

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 14/2 2012

Sunnudagurinn 12.febrúar 2012

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur djákna.,,Búum til listaverk”. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 7/2 2012

KIRKJUKRAKKAHÁTÍÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA, SUNNUDAGINN 5.FEB.2012 :)

Kirkjukrakkahátíð fyrir alla fjölskylduna kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Barnastarf Breiðholtssafnaðar kemur í heimsókn. Þórey Dögg Jónsdóttir djákni leiðir stundina. Undirleik annast Íris Andrésdóttir og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Litrófið syngur og leiðir safnaðarsöng og tvær stúlkur úr Litrófinu, Lilja Rós Kristbjörnsdóttir og Erna Margrét Sigurðardóttir sýna dansatriði. Allir koma með veitingar til að leggja á sameiginlegt veisluborð eftir stundina. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.  Verið öll innilega velkomin á Kirkjukrakkahátíð í Fella- og Hólakirkju.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 31/1 2012

Guðsþjónusta sunnudaginn 29.janúar 2012

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.

Í sunnudagaskólanum verður Kirkjukrakkahátíð í samstarfi við Breiðholtskirkju. Allir mæta í Breiðholtskirkju kl.11. Pálínuboð. Allir koma með einhverjar veitingar til að setja á sameiginlegt borð. Mikið fjör og gaman. Verið innilega velkomin.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 24/1 2012

Dagskrá sunnudagaskólans

Sunnudagaskólinn er hafinn á ný.
Á hverjum sunnudegi er boðið upp á skemmtun og fræðslu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Umsjón hefur Þórey Dögg Jónsdóttir, djákni. Farið undir “Safnaðarstarf” og skoðið dagskrá vorsins.

Gry Ek, 18/1 2012

Kirkjukrakkar!

Gjaldfrjálst starf fyrir 6-9 ára börn í Fella- og Hólahverfum á fimmtudögum frá 14:30 – 15:15. Dagskráin í janúar og febrúar er frábær !
Farið undir “Safnaðarstarf” og skoðið dagskrána: http://kirkjan.is/fellaogholakirkja/safnadarstarf/kirkjukrakkar/
Lesa áfram …

Gry Ek, 17/1 2012

KRÍLASÁLMAR - NÝTT NÁMSKEIÐ

Mánudaginn 30. janúar kl. 10:30 hefst nýtt námskeið í Krílasálmum sem er spennandi tónlistarnámskeið fyrir börn á fyrsta ári og foreldra þeirra. Námskeiðið er átta skipti og kostar 3500 kr. Enn eru nokkur pláss laus á námskeiðið svo það er um að gera að drífa í að skrá sig en hámarksfjöldi þátttakenda er 10 börn. Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér.

Guðný Einarsdóttir, 17/1 2012

Messa sunnudaginn 22.janúar 2012

Messa kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur. Þar verður leikjafjör. Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 17/1 2012

Kirkjan er opin mán-fim frá kl. 09:00-17:00 og fös kl 9:00-15:00.
Sími: 5573280






Viðtalstímar presta og djákna


Sr. Svavar Stefánsson, sóknarprestur Fellasóknar
mán-fim kl.11-12.
Farsími; 860 2266.
svavar.stefansson@kirkjan.is, Prédikanir og pistlar

Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sóknarprestur Hólabrekkusóknar þri-fös kl.11-12.
Farsími 896 4853.
gudhjor@simnet.is.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni
Viðtalstími eftir samkomulagi
Farsími: 864 0564
ragnhildur@simnet.is.
Pistlar og ljóð


Þórey Dögg Jónsdóttir, djákni
Viðtalstími eftir samkomulagi
Farsími: 698 1206
thj32@hi.is.

VELKOMIN(N) Í ÞJÓÐKIRKJUNA:
- - - - - - - - - - - - - -
SKRÁÐU ÞIG
SKRÁÐU BARNIÐ ÞITT
NÁNARI UPPLÝSINGAR

 

Fella- og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík. Sími 557 3280 , fax 567 7415 · Kerfi RSS